Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1965, Page 118
122
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
brugðinn skrautverkinu að öðru leyti. Það er bylgjuteinungur með
uppundningum, þar sem hver uppundin grein sker aðalstöngulinn
og endar á blaði með þremur eða fleiri flipum, sem sumir eru úr-
hvelfdir. Lítil þrískipt blöð á stilk eru til uppfyllingar við brúnirn-
ar. (Greinilegur skyldleiki við Vestfjarðaskerana frá 17. öld.) Eng-
ar innri útlínur, en þó nokkur þverbönd. Á öllum öðrum flötum eru
stönglarnir með innri útlínum og blaðformin eru önnur. Þau eru
mjög mismunandi að lögun, og flest eru þau með innri útlínum og
þverböndum. Sums staðar hnappast þau saman í stóra skúfa. Jurt-
irnar eru miklu blaðríkari en vanalegt er, sérstaklega á öðrum gafl-
inum og lokinu. — Útskurðurinn er vel gerður og verkar mjög vel.
4. Ekkert ártal.
5. Áletrun á loki: BRINOLFVRI :S:
1. 1+6. (164) Kistill úr furu. Venjulegt lag. Trénaglar og fá-
einir járnnaglar. Járnlamir. Skráargat með flugu. Handraði. L. 33,8.
Br. 17,3. H. um 16,5.
2. Annan okann vantar á lokið. Lamirnar eru óheilar. Skrá
vantar. Gjögtir um samskeyti. Dálítið maðksmoginn. Ómálaður.
3. Okinn, sem enn er á lokinu, er með tungum að neðan. Lokið
á handraðanum stendur nokkuð fram af og er þar með tungum og
skreytt nokkrum skurði. Útskurður á loki, hliðum og göflum. Á öll-
um flötum eru höfðaleturslínur efst og neðst, en jurtaskreyti á
milli. Bæði stafir og skreyti er mjög flatt upphleypt, ef hægt er þá
að tala um upphleypingu yfirleitt. Skreytti flöturinn á lokinu skipt-
ist í tvennt eftir endilöngu, og hvor þessara aflöngu reita er með
bylgjuteinung með uppundningum og blaðflipum í hverri bylgju.
Nokkuð af þverböndum. Á hliðum og göflum eru engir teinungar.
Á öllum þessum flötum er svo til sama munstur og samanstendur af
hjartalöguðum myndum, sem skerast tvær og tvær, önnur með
broddinn niður og hin með broddinn upp. Alls staðar á milli fyllt upp
með jurtaskreyti. — Engan veginn vandað verk nema stafirnir, sem
eru mjög nákvæmlega gerðir.
4. Ekkert ártal.
5. Höfðaletursáletrunin:
Lokið: elisabetber
gsdottirast
Framhlið: huarumsuædi
heimsagrunda