Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1965, Page 54
58
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
29. mynd. GciuksstaÖir á Jökuldal, fundarstaöur beina; á baksviöi bærinn
Hjaröarhagi.
í grafarbörmum sást, 5—15 sm undir yfirborði, grátt öskulag,
sem mun vera frá Öskju 1875.
Ekkert sérstakt bendir til þess, að þessi gröf sé frá fornöld. Stað-
urinn er óeðlilega langt frá bæjum af fornmannskumli að vera. Þó
mættu bein þessi vera frá heiðni, en þau geta eins verið frá miklu
síðari tíma, kynnu að vera úr einhverjum, sem þarna hefði orðið til
á harðindatímum.
Athugasemd viö Kumlatal 111, Kuml og haugfé, bls. 117.
1 Kumlum og haugfé, bls. 177, Kumlatal 111, er Kóreksstaðafundur talinn með-
al kumla. Kóreksstaðir eru í Hjaltastaðahreppi, Norður-Múlasýslu. Á þessum
stað fundust syjót og öxi. Samkvæmt vitneskju, sem síðar hefur borizt, er lík-
lega réttara að kenna fundinn við Dali. Einar Halldórsson frá Kóreksstaðagerði
skýrði svo frá í Þjóðminjasafninu hinn 15. 3. 1959:
„Forngripina fundu þeir Kristján Wium og Hallur Bjarnason. Staðurinn er
ofan við eyðibýlið Dalasel, í landi Dala, rétt við merkin; kumlið hefði getað
verið frá Dölum. Spjótið stóð upp úr leirflagi, en öxina fundu þeir seinna á
sama stað. Ekkert sögðu þeir um mannabein, en staðurinn er talinn vera eðli-
legt kumlstæði."