Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1965, Blaðsíða 35
KUML ÚR HEIÐNUM SIÐ
39
15. m-ynd. Ytra-Garðshorn, 3. kuml; leifar haugfjár, skceri og hnífur til vinstri,
eldstál efst. Tœplega 1 :2.
kumlabrjótar hafa rænt. Þegar aftar dró í kumlinu, var óhreyft, og
fannst venjulegur hnífur úr járni (15. mynd) þar sem verið hafði
ftiittisstaður hinnar heygðu konu; hnífurinn er 13,2 sm langur með
tanga. Þar fyrir aftan sáust óhreyfðir lærleggir og fótleggir, og
hafði konan verið lögð á bakið í gröfinni. Við fætur henni fundust
nokkrir hlutir: a. Eldstál, 6,2 sm langt, af sömu megingerð og Jan
Petersen, Vikingetidens redskaper, 231. mynd, og eldstálið úr Hraun-
tungurústum (Þjms. 4542a, Kuml og haugfé, bls 347, 163. mynd),
ea til muna þéttar samanbeygt en þau. b. Þrjú brot af skærum með
Venjulegu sauðaklippulagi eins og Kuml og haugfé, bls. 340, 157.
ttiynd. e. Járnspengur tvær þunnar, hafa legið við og verið negldar
á tré; með þeim voru og nokkrir naglar, m. a. tveir langir (6,5 og
7)5 sm), járnfleygur, sem staðið hefur í tré, og loks lítill járnhring-
U/>'- Allt þetta gætu verið leifar af kistli. Loks er að geta þess, að í
ffi'öfinni fannst einn hnöttóttur smásteinn af þeirri tegund, sem
við vitum nú, að fólk safnaði einhverra hluta vegna (sbr. 9. kuml).
Láeinir viðarkolamolar fundust og í gröfinni.
I austurenda grafarinnar lá beinagrind úr hesti, alveg óhreyfð.
Hafði hann verið lagður á hægri hlið, hausinn austast, hryggurinn