Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1965, Blaðsíða 113
ÍSLENZKUR TRÉSKURÐUR í ERLENDUM SÖFNUM
117
3. Framhliðin er útskorin og skiptist í reiti. í miðreitnum er
sexblaða skipaskurðarrós með hring, sem sker blöðin í miðjunni,
og hring umhverfis. Á milli hringanna tveggja kemur þannig fram
hringlaga belti, og í bilunum, sem þar vei’ða milli blaða sexblaða-
rósarinnar, er innst röð af kílstungum og út frá henni þrjár blað-
tungur með innri útlínum og þverböndum. Reitirnir báðum megin
við miðreitinn eru eins. Hin innstu eru með rúðumunstri með flatri
upphleypingu. Hinir næstu eru eins að efni til, en þar er rúðunum
aftur skipt upp í smærri rúður. Yztu reitirnir báðum megin skipt-
ast aftur í fimm smærri reiti með rúðumunstrum, krossum og kráku-
stígsböndum. — Allvel gert.
4. Ekkert ártal.
5. Engin áletrun.
1. 15. (161?) Rúmfjöl úr furu. L. 113,5. Br. 19,6. Þ. 1,5.
2. Dálítið slitin á hornum. Stórt kringlótt gat á miðju, nokkur
naglagöt. Dálítið ormétin. Leifar af grænleitri málningu.
3. Á framhlið er „arkítektónískt" skreyti, sem skipt er í reiti
nieð lóðréttum naglskurðarröðum, tveimur og tveimur saman. Inn-
an í hverjum reit er lækkaður flötur, sem er eins og bogagluggi í
laginu. Það er á þessum ílötum sem leifar af málningu sjást. —
Nákvæmlega gert að öðru en því, að ,,glugginn“ lengst til vinstri
er nokkru stærri en hinir átta.
4. Ekkert ártal.
5. Engin áletrun.
1. 16. (2356) Rúmfjöl úr furu. L. 105,3. Br. 18. Þ. um 1,5.
2. Stór sprunga. Flísar dottnar úr. Dálítið maðksmogin. Brún-
bæsuð, á framhlið og brúnum.
3. Útskurði á framhlið er skipt í fimm reiti. Miðreiturinn og
endareitirnir eru því sem næst rétthyrndir og jafnhliða, hinir tveir
rétthyrndir en aflangir. í miðreitnum er hringur og í honum spegil-
aafndráttur, flatt upphleyptur, og fyrir ofan hann lítið, samhverft
stöngulskreyti. Horn ferhyrningsins fyrir utan hringinn eru fyllt
hpp með smágerðum blaðtunguröðum. Á hvorum endareit er ein
skipaskurðarstjarna. Vinstra megin er áttablaðarós með nokkrum
sammiðja hringum yfir um blöðin og geislastæðum skipaskurðar-
stungum einnig milli blaðanna. Til hægri er fjórblaðarós, sem einn-
er með hringum og með perluröðum, sem mynda kross. Þar að
auki nokkrar auka-skipaskurðarstungur milli blaðanna. I aflöngu