Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1965, Blaðsíða 66
70
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Haugfé úr knmlinu á Selfossi (2. kumli). Tæplega 1:2.
úr tvinnuðum silfurvír. Rafperlan er stærst. um 1,5 sm í þvermál.
Allar eru perlurnar einlitar.
Hnífur, 16,8 sm. 1., þar af er skaftið 11 sm, en nokkuð vantar
framan af oddinum, einnig er blaðið brotið frá skaftinu. Hnífur-
inn er líkastur Rygh 405 og 4062 og Redskaper 1093, því að blaðið
myndar stall við tangann, bæði bakka- og eggjarmegin, en þó virð-
ist blaðið á þessum hníf vart hafa getað verið jafnlangt og á Red-
skaper 109. Það sem eftir er af því nú er aðeins 5,8 sm 1. og 1,6
sm br. Tanginn á þessum hníf gengur aftur 1 gegnum skaftið, og
er afturendinn beygður í lykkju út á hlið. 1 lykkjunni hefir verið
hringur, en hann er nú hálfur brotinn af. Sams konar hringur var
í skafti hnífs í kumli á Grásíðu í Kelduhverfi, Kt. 994, en ekki
er mér kunnugt um slíkan hring í skefti á neinum erlendum vík-
ingaaldarhníf. Þessi hnífgerð er talin fremur ung í Noregi, flestir
frá 10. öld, margir yngri, en þó eru nokkrir frá 9. öld.
Sigð. Blaðið er brotið í tvennt, en annars er hún heil. Það er all-
mikið bogið, 12,5 sm 1. og 1,8 sm br. um miðju. Þjóið er næstum
í beinu framhaldi blaðsins og þó aðeins krappara, slegið fram í
tanga og oddur hans beygður til hliðar, til að veita stöðvun í skafti.