Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1965, Blaðsíða 112
116
ÁRBÓK F'ORNLÉIFAFÉLAGSINS
breiðum flötum stönglum (allt að 5 sm breiðum) liggja út frá
hringnum báðum megin, nokkurn veginn samhverft. Á þeim eru
innri útlínur og mörg þverbönd. Bæði stærri og smærri greinar
enda á kringlum. Engin raunveruleg blöð. — Mjög gróf vinna.
4. 1864.
5. Höíðaletrið er víst: omsa
bbda
1. 13. (2856) Rúmfjöl úr furu. L. 101. Br. 14. Þ. um 1,4.
2. Lítur út fyrir að vera sagað af báðum endum. Nokkur nagla-
göt, og stór sprunga eftir miðju. Mjög máð á framhlið. Maðksmogin.
Ómáluð.
3. Teinungaskreyti með flatri upphleypingu á framhlið. Á þeim
endanum, sem telja verður hinn hægri, er flækja af örsmáum stöngl-
um, sem enda á litlum blöðum með stórum bogmynduðum miðflipa
með stungu í miðju og tveimur minni hvössum hliðarflipum. Síðan
koma nokkrir stórir höfðaletursstafir, ef til vill i h d, og þrjú lárétt
bönd dregin gegnum þá. Smástönglar og blöð eru einnig yfir, undir og
liægra megin við bókstafina. Miðbandið heldur áfram eftir endilangri
fjölinni og er þrætt gegnum stóran bylgj uteinung af rómanskri
gerð. I hverjum aðaluppundningi hans eru innst tvö blöð með stór-
um bogadregnum og rúðustrikuðum miðflipa og litlum hvössum
hliðarflipum. Greinar spretta út til hliða og enda á minni blöðum,
sem sumpart eru með rúðustrikuðum og sumpart með úrhvelfdum
flipum. Innri útlínur á stönglum, blöðum, böndum og bókstöfum.
— Þetta kann að hafa verið mjög gott verk, en erfitt er að dæma
það vegna slits. Getur verið frá 17. öld. Styðst a. m. k. við fyrir-
myndir hjá vestfirzkum tréskerum frá þessu tímabili.
4. Ekkert ártal.
5. Aðeins höfðaletursstafirnir þrír.
1. H. (2856) Rúmfjöl úr furu (eða ef til vill greni?). L. 114.
Br. 16,5. Þ. 1,3.
2. Nokkrar sprungur, annars óskemmd. Ómáluð. (108. mynd).
108. mynd.