Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1965, Blaðsíða 134
138
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
4. Innan á lokið er skorið 1808, en núllið virðist upphaflega
liafa verið talan 8.
5. Auk ártalsins eru einnig skornir innan á lokið stafirnir ÞLD.
ASKAR
1. 19. (2359) Askur úr furu. Venjulegt lag, bumbumyndað-
ur, þrjár gjarðir, stórt og lítið handarhald, lokið hvelft, og mynd-
ast tota fremst. Þvermál mest um 22. H. 12,8.
2. Gisinn. Stærra handarhaldið skemmt. Dálítið ormétinn. Ómál-
aður.
3. Otskurður aðeins á lokinu. Við totuna er reitur með kílstungu-
röðum, sem skiptast á við bein rist strik. Á hlýrunum báðum eru
snúin bönd, og á ferskeytta reitnum framan við þá er fjórblaða
skipaskurðarrós með nokkrum ristum strikum og smáskorum milli
blaða. Annars er tilhögunin samhverf. í miðju er lítil sexblaða
skipaskurðarrós og umhverfis hana raðir af bátlaga skipaskurðar-
stungum, kílstungum og tungum með þríhyrndum skipaskurðar-
stungum. Síðan opið svæði. en kílstunguröð úti við brúnirnar. — Vel
og nákvæmlega gert.
4. Ekkert ártal.
■5. Engin áletrun.
1. 20. (182?) Askur úr furu, venjulegt lag, lokið hvelft og
tota fremst. Þvermál mest 21,3. H. 14.
2. Miðgjörðin laus. Stærra handarhaldið sprungið. Brúnbæs-
aður. (114. mynd).
3. Útskurður á hliðum, handarhaldi og loki. Á hliðum og hand-
arhöldum er skreytið rist, á handarhöldunum aðeins rúðustrikun,
en á hliðunum eru afmarkaðir hálfkringlulagaðir reitir, hver með
sinni pálmettu, og fyllt upp með rúðustrikun á milli. Á lokinu er
skrautverkið að mestu leyti lágt upphleypt. Á hvelfdum fleti þess er
samhverft jurtaskreyti. Teinungsbútur breiðir samhverft úr sér
til beggja handa og sprettur upp frá klofanum. Stönglarnir eru
mjóir og sléttir, og allar greinar enda á kringlu, sem er með kringl-
óttu grópi í miðjunni. Blöð af ýmsum gerðum, rúðustrikuð eða rönd-