Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1965, Page 38
42
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
N
19 mynd. Ytra-GarOshorn, 7. kuml; grunnmynd; viS x met úr blýi, viS xx naglar
og doppur af beizli.
7. kuml var 13 m sunnan við 5. kuml, sneri SV-NA, eins og flest
hinna, gröfin 3,20 m að lengd, 70 sm að breidd og 65—70 sm djúp,
grafin um 20 sm niður í smiðjumóinn (19. mynd). 1 gröfinni var
mikið grjót, og hafði sýnilega verið áþekkt og í 3. kumli, en rofið
var þetta kuml eins og öll hin. Fáein tvístruð mannsbein og hross-
bein voru í vesturenda grafarinnar, og þar hefur maðurinn legið,
að áliti Jóns Steffensens sennilega kona, en rétt fyrir aftan miðja
gröf voru óhreyfðir afturlimir af hesti og í austurenda grafarinnar
einnig annar framfóturinn. Um 80 sm frá vesturenda fannst dálítið
af metum úr blýi, eða nánar til tekið sem hér segir (20. mynd) :
Met, snúðlaga, með kringlóttri holu á miðjum báðum hliðum, 2,1
sm í þvm, 24,247 g að þyngd.
20. mynd. Ytra-GarSshorn, 7. kuml; met úr blýi og tinnumoli.