Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1965, Blaðsíða 133
ÍSLENZKUR TRÉSKURÐUR 1 ERLENDUM SÖFNUM
137
flipinn framlengist og myndar stöngul, sem sker aðalstöngulinn
og endar með tví- eða þrískiptu blaði úti við brún loksins eða inni
við miðkringluna, sitt á hvað. Flestir blaðfliparnir eru úrhvelfdir
með skipaskurði. Þverbönd yfir um blaðflipana inni í bylgjunum. —
Vel gert og með glæsilegum svip.
4. Ekkert ártal.
5. Stafirnir utan á lokinu: VID A Ö V
1. 55. (2357) Trafaöskjur úr furu, kringlóttar, negldar með
trénöglum og nokkrum járnnöglum. Hnöttóttur knappur festur á
mitt lokið. Þvermál 23,4. H. (fyrir utan knappinn) um 8.
2. Botnplatan losaraleg og með stórri sprungu. Annars eru öskj-
urnar í góðu lagi. Brúnbæsaðar.
3. Útskurður aðeins á lokplötunni, sem er með stórri skipa-
skurðarstjörnu (sexblaðarós) í miðjunni. Einnig eru ,,blöð“ í hring
umhverfis rósarblöðin. Ristar útlínur kringum þau öll og kring-
skorin rósetta á hverju blaði miðju. Þrjár kílstungur í öllum þrí-
hyrndu reitunum milli þeirra. Hringur með kílstungum utan um
allt þetta, síðan sléttur kafli, en yzt með brúnum er aftur hringur
með kílstungum. — Laglega gert.
4. Ekkert ártal.
5. Engin áletrun.
1. 56. (163) Trafaöskjur úr furu, kringlóttar. Botnplatan úr
þremur fjölum, lokplatan tveimur. Járnnaglar. Tágar. Þvermál 31,5.
Hæð um 11.
2. Hliðarnar dálítið flagnaðar að neðanverðu. Saumarnir nokk-
uð af sér gengnir. Ómálaðar.
3. Útskurður aðeins á lokplötunni. Yzt við brúnir er kílstungu-
röð, síðan hringur með innri útlínum, en að öðru leyti er flöturinn
fylltur með jurtaskreyti, um 4 mm hátt upphleyptu. Það er alveg
samhverft. Fjórir stönglar spretta upp af „þúfu“ með rósettu inn-
an í, og verða tveir til hvorrar handar. Minni greinin hvorum
megin endar brátt með sveip, en stærri greinin skiptist í tvær
greinar, sem hvor um sig myndar allstóran uppundning einnig
með sveip innst og með kafla sem er skipt í marga blaðflipa (þar
sem akantusblöð liggja ef til vill til grundvallar). Allir stönglar
eru flatir ofan og með innri útlínum. Fyllt upp með nokkrum þrí-
skiptum blöðum, en að öðru leyti með rúðustrikuðum reitum. —
Laglegt verk.