Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1965, Side 81
TVEIR KUMLFUNDIR
85
Spjót úr kumli hjá Gömlu Grímsstöðum á Fjöllum. 3.% — Höf-
undur teiknaði.
Fornar kumlleifar, mjög örfoka, voru á fundarstað.
Tekin höfðu verið upp bein hérna og haldið til haga.
Umhverfis er auðnarlegt mjög, blasa við dökkar mel-
öldur og háir rofbakkar á stangli. Var leiðið sunnan
við stórt rofbarð, á allháum og ávölum mel norðan
grasskersins, sem bæjartóftirnar eru á, og um 64
metra frá vegi. Örlítið hallar suður hér. Leifar grafar-
umbúnaðar skáru sig úr á melnum. Var það hnappur
allvænna steinhnullunga, dálítið ílangur, lengd hans
frá norðri til suðurs um 1 m, þvermál minna á hinn
veginn, en stakir steinar, flestir minni, voru umhverfis
og á dreif. Nær allir lágu steinarnir á einum fleti. Við
þá var dálítil beinadreif. Sunnan við var foksandur og
bein í, en syðst á kumlreit mold og óx þar gras. Spjótið
hafði fundizt í moldinni, innan við 1 m frá hnapp. Sneri
það norður og suður og sást í falenda. Fátt kom í ljós
beina við uppgröft, hvergi var dj úpt að, en legan skert
og ekki framar til leiðsagnar um greftrun í einstökum
atriðum. Flest lágu kumlbein við grjóthnappinn, innan
hans eða á honum. Voru þau brotin og fúin. Móbleik
skán gróðurleifa, þunn og ekki stór, var við miðbik
grafar vestan megin og á legfleti steina. 1 jarðvegi
mátti greina vikur og eldfjallaösku. Allt bendir til, að
kuml þetta hafi verið látið snúa norður og suður.
Spjótið, sem er einu haugfjárleifarnar, virðist mega
telja til K-gerðar. Það er aðeins 16,9 sm á 1., br. mest
yfir blað, um 2,2 sm. Hryggur rís í miðju og að
endilöngu báðum megin á blaði. Dálítið sveigist oddur að ann-
arri hlið. Rifnað hefur úr fal á enda. Ryð er á og kekkjahrúður.
Þrír hafa verið heygðir í kumli þessu. Beinin, sem tekin voru
úr því við rannsókn, eru úr um tólf ára gömlu barni og af fullorðn-
um, hin síðartöldu ef til vill af konu. Til hinna fyrrtöldu telst hægra
hvirfilbein, fundið áður úti á mel norðan rofbarðsins, sem kumlið
var við, og eru þangað um fjörutíu metrar. En við beinin, sem
ef til vill eru af konu, gæti átt ennisbein, fundið hjá Gömlu Gríms-
stöðum árið 1952. Tekin höfðu verið upp á legstaðnum bein úr dýr-
um og vinstra hvirfilbein úr ungum manni, kyn óvíst,