Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1971, Page 64
64
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Tómasi Brandssyni komnir og jafnframt bræðrasynir og systra-
synir.
7) Þótt óljóst sé virðist móðir Péturs í Stóru-Brekku í Fljótum Þor-
leifssonar pr. á Knappsstöðum í Stíflu Sæmundssonar hafa verið
dóttir Tómasar og síðari konu hans. Tómas ætti því að hafa
verið forfaðir hinnar kunnu Stóru-Brekkuættar.
Albróðir Tómasar var síra Jón, sem lengst þjónaði Barði í Fljótum
en síðast var á Guðlaugsstöðum í Blöndudal. Systir hans var Helga
Brandsdóttir kona Magnúsar frá Espihóli í Eyjafirði Brynjólfssonar,
og var meðal barna þeirra Hallur skáld, þjóðkunnur á sínum tíma,
faðir Tómasar skálds og lögréttumanns í Kjalarnesþingi. Önnur
systir Tómasar var Guðrún móðir Ingunnar Helgadóttur fyrri konu
Jóns yngra lögréttumanns á Einarsstöðum í Reykjadal Ormssonar.
Þ. s. var Jón silfursmiður á Stóru-Borg í Vesturhópi og síðar á
Draflastöðum í Fnjóskadal.
Frændi Tómasar, eflaust náskyldur honum, en þó vita menn ekki
ættaböndin, var Hrólfur lögréttumaður í Hegranesþingi Bjarnason,
kunnur og ættsæll maður.
I ættabókum, í handritum og í prentuðum heimildum, sem teknar
eru eftir þeim, t. d. Sýslumannaæfum, er margt óljóst og rangt sagt
um ætt Tómasar Brandssonar, og í nafnaskránni við Sýslumanna-
æfir eru t. d. gerðir tveir menn úr einum. Tómas Brandsson, sem
nefndur er í IV. b., bls. 139, er kenndur við Tungu í Stíflu. Hann
er stundum talinn sonur svonefnds „Fljóta-Brands“, sem 18. ald-
ar ættfræðingar röktu til, en var mjög í þoku fyrir þeim. f raun-
inni runnu í sögnum og minni manna 3 menn með Brands-nafni
saman og urðu að „Fljóta-Brandi“. Hinn elzti var Brandur bóndi
á Barði í Fljótum Halldórsson, fæddur nálægt 1380, tengdasonur
Hrafns lögmanns Guðmundssonar og faðir Hrafns lögmanns eldra
Brandssonar, auðugur maður og tengdur helztu ættum landsins.
Hinn næstelzti var Brandur Pálsson, fæddur nálægt 1460, all-
efnaður maður, sem bjó sennilega lengstum í Fljótum og a. m. k.
um tíma í Holti í Fljótum, að því er virðist. Það virðist ekki hafa
borið mikið á honum, en margt merkt fólk er af honum komið, þótt
niðjatal hans hafi ekki verið sérstaklega rakið í ættabókum. Hinn
yngsti var Brandur Helgason, fæddur nálægt 1500, sonur Helga í
Tungu í Stíflu Vigfússonar s. st. Þorsteinssonar svarts á Myrká o. v.
Höskuldssonar. Sá Brandur er oft nefndur í skjölum vegna mála-
reksturs um jarðeignir, sem stjúpfaðir hans hafði selt í heimildar-