Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1971, Side 109

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1971, Side 109
STAURSETNING 109 skemmri skírn, sem gripið var til ef barn fæddist líflítið og ekki náðist til prests fljótlega til að skíra það. Matthías Þórðarson getur þess neðanmáls í útgáfu sinni á Eiríks sögu rauða (Islenzk fornrit IV, 1985, bls. 217), að munnmæli séu um, að staursetning hafi verið framkvæmd fyrrum í afskekktum kirkju- görðum hérlendis, helzt í Grímsey, en ekki muni það þó samkvæmt neinum lögum. Það er greinilegt, að hann veit engin örugg dæmi þessa og virðist einnig telja, að aðferðin hafi ekki verið viðhöfð á seinni tímum. Öruggar heimildir eru þó fyrir því, að staursetning hafi verið framkvæmd í að minnsta kosti fimm skipti á þremur stöðum hér- lendis á síðasta hluta 19. aldar og jafnvel svo seint sem á 2. tug 20 aldar. Fjögur dæmi eru frá afskekktum byggðarlögum, Aðalvík og Grunnavík svo og Grímsey, en eitt úr Mýrdal. Þar sem greftrunar- aðferð þessi er athyglisverð og heimildir skýrar og öruggar þykir mér rétt að geta þeirra hér. Magnús Gestsson kennari gerði mér þann greiða að spyrjast fyrir um það í Grímsey, hvort menn könnuðust við staursetningu þar. Fékk hann vitneskju um tvö dæmi frá þessari öld, sem hér skulu nefnd. Er skýrsla Magnúsar í heimildasafni Þjóðháttadeildar Þjóðminja- safnsins (ÞÞ 2301). Árið 1907, seinni hluta vetrar, andaðist í Grímsey gamall maður, Halldór að nafni. Séra Matthías Eggertsson var þá prestur í Gríms- ey og búsettur þar, en hann var um þessar mundir staddur í landi og óvíst var, hvenær hann kæmi aftur út í eyjuna. Var þá það ráð tekið að staursetja líkið. Var heimildarmanni Magnúsar í fersku minni, er hann kom ásamt hóp leiksystkina sinna í kirkjugarðinn, eftir að greftrunin hafði farið fram, hve þeim varð starsýnt á staur- inn, sem stóð upp úr leiðinu. Þetta var mjög gildur rekaviðardrumb- ur, sívalur og stóð um þrjú fet upp úr moldinni, beint uppá endann. Árið 1920 andaðist í Grímsey drengur, sjö daga gamall. Séra Matthías var þá nýfarinn í land er drengurinn dó, en hafði skírt barnið áður en hann fór. Búizt var við að prestur yrði lengi í ferð- inni og þar sem ekkert talsamband var þá milli eyjar og lands var það ráð tekið að staursetja lík drengsins. Var hann jarðsettur fáum dögum eftir andlátið. Staursett var með þeim hætti, að faðir drengs- ins smíðaði tréstokk úr fjórum breiðum borðum og var hann látinn standa uppá endann á kistunni miðri, nær höfðagafli, meðan mokað var ofaní. Þegar séra Matthías var kominn úr landi fór fram venjuleg jarð-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.