Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1971, Page 123

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1971, Page 123
ÞRIR ATGEIRAR 123 hlítar séð, hvernig aftari hyrnan hefur verið, en helzt er svo að sjá sem eggin hafi verið bein eða því sem næst. Andspænis axarblaðinu miðju er svo krókur, með tilskornum brúnum, mikið líkur króknum á C, en þó öllu einfaldari að gerð. Ekkert hefur varðveitzt af skaftinu á þessum atgeir nema örlítill bútur uppi í falnum, ofan við geirnaglann. Virðist það hafa verið úr greni. Sýnilega hafa gengið spengur upp eftir skaftinu á þessum atgeir eins og hinum, en ekki er nú auðið að lesa sundur með vissu brotin úr spöngunum af atgeirunum þremur. C. (6. mynd). Þessum atgeir er í stórum dráttum svo bezt lýst, að fram af skafti gengur mikil og biturleg fjöður, en rétt fyrir ofan fal- opið gengur eins og axarblað út til annarrar hliðar, en krókur and- spænis því til hinnar (þýzkur atgeir, sbr. síðar). Lengdin öll frá fal- opi fram á odd er 41,3 sm. Falopið er ferskeytt, 3,7x4,0 sm, og utan um það er 8-10 mm breið járngjörð til styrktar. Falurinn hverfur brátt í sjálft atgeirsblaðið og sést aðeins sem ávalur hryggur á því, en þar beint fram af er svo fjöðrin áðurnefnda, nokkuð jafnbreið fram undir odd eða um 3,3 sm. Eggjar fjaðrarinnar eru þunnslegnar, en eftir báðum hliðum hennar gengur hár skarpur kambur. Öðrum megin við falopið er svo axarblaðið, um 4,5 mm að þykkt (reyndar töluvert ryðbólgið nú). Eggin er íbjúg (bogin inn á við), um 20 sm löng, og ganga hyrnur bæði fram af og aftur af; fremri hyrnan er nú brotin um þvert. í krikanum milli fjaðrar og axarblaðs er skorið úr brúninni til skrauts, og sams konar skurðir, lítill bogi með sínu hakinu hvoru megin við, standast á neðst á báðum eggjum fjaðrar- innar. Er þessi skurður mjög í stíl við tilskurð, sem er á jöðrum króksins, sem er hinum megin á atgeirshöfðinu og andspænis axar- blaðinu. Nær krókur sá tæpa 11 sm út frá miðjum falhryggnum á blaðinu og verður að öðru leyti bezt lýst með tilvísun til mynda. Þykkt hans er sú sama og þykkt blaðsins. Járnbönd ganga upp eftir skaftinu frá falopinu, upp frá flötum hliðum blaðsins, en ekki egg og bakka eins og á A. Hverfa þau þar upp undir járngjörðina; þau eru 1,8 sm efst, en töluvert mjórri, þeg- ar neðar dregur. Böndin ná 48 sm niður eftir skafti, og hafa verið negld með járnnöglum, líklega fimm hvorum megin. Skaftið er úr aski, laglega telgt, áttstrent, gildast um miðju, 3,2 X 3,8 sm, mjókk- ar lítið eitt upp eftir, til höfuðsins, en talsvert mikið niður eftir, svo að allt að því má segja, að halinn komi niður í odd. Lengd skaftsins er 165 sm eða vopnsins alls 206-207 sm.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.