Norðurljósið - 01.01.1972, Side 108
108
NORÐURLJÓSIÐ
erum efasemdamenn ? Eða láta aðra gera? Fyrst þarf að komast að
því, hvort viljinn er lagður undir Guðs vilja eða ekki. Því að „ef sá
er nokkur, sem vill gera vilja hans (Guðs), hann mun komast að
raun um, hvort kenningin er af Guði, eða hvort ég tala af sjálfum
mér.“ Jóh. 7. 17. Þegar maðurinn er fús til að gera vilja Guðs, segið
þá aðeins við hann: „Taktu þessa bók og lestu hana með íhugun og
einlægni, komdu síðan aftur og segðu mér frá árangrinum.“ Árang-
urinn bregzt ekki. Sérhver maður, sem vill hlýða sannleikanum, fara
með þessa bók til Guðs og biðja hann að gefa sér ljós, skilning, mun
verða trúaður á Jesúm sem Krist, son Guðs. Ég hefi reynt þetta við
fólk, ég veit ekki hve mörgum sinnum, og aldrei hefir þessi regla
brugðizt, sem Kristur gaf. Árangurinn hefir ætíð orðið hinn sami.
Sú trú, sem fær sigur yfir holdinu, heiminum og djöflinum, trúin,
sem vinnur stóra sigra fyrir Guð, kemur líka af orði Guðs. 1. Jóh. 5.
4.; Efes. 6. 16.; Hebr. 11. 33., 34. Mjög snemma á tíma þjónustu
minnar las ég ræðu eftir Moody. Eitthvað var þar á þá leið, að sá
maður yrði einskis virði, sem ekki hefði trú. Ég sagði: „Þessi ræða
er sönn. Ég verð að hafa trú.“ Ég fór að reyna að auka mér trú. Það
mistókst. Því meir sem ég reyndi að auka trú mína, því minni varð
hún. En dag nokkurn las ég þetta: „Svo kemur þá trúin af boðun-
inni, en boðunin byggist á orði Krists.“ Róm. 10. 17. Þar með lærði
ég leyndardóm trúarinnar, einhvern mesta leyndardóm, sem ég hefi
nokkru sinni lært. Ég fór að næra trú mína á orði Guðs. Eins og ég
hefi þannig nært hana, hefir hún haldið áfram að vaxa frá þeim degi
til þessa. Ef vér eigum að hafa kraft til að starfa fyrir Guð, verðum
vér að hafa trú. En til þess þurfum vér að nærast stöðuglega, ríku-
lega og daglega á orði Guðs.
4. Orð Guðs hefir kraft til að hreinsa. „Þér menn, elskið konur
yðar að sínu leyti eins og Kristur elskaði söfnuðinn og lagði sjálfan
sig í sölurnar fyrir hann, til þess fyrir vatnslaugina, með (í) orð-
inu, að hreinsa hann og helga.“ Efes. 5. 25., 26. Orð Guðs hefir
kraft, ekki aðeins til að taka óhreinleika burt úr hjartanu, heldur til
að hreinsa lífernið líka. Ef þú vilt, að líferni þitt sé hreint, verður
þú að þvo þér oft með því að bera það saman við orð Guðs. Vér lif-
um öll í heimi, sem er mjög óhreinn heimur. Daglega komum vér í
snertingu við þennan óhreina, sauruga heim. Aðeins með einu móti
er unnt að halda sér hreinum. Það er með því, að haða sig oft í orði
Guðs. Þú verður að baða þig á hverjum degi og taka þér nægan