Réttur - 01.01.1961, Blaðsíða 3
R E T T U R
3
Öll þessi þróun í veröldinni skapar þjóð vorri enn betri aðstöðu
til þess að tryggja framgang þeirrar stefnu, sem Sósíalistaflokk-
urinn hefur ætíð unnið að: þ.e. að friður megi haldast með þjóð-
unum, vinátta og viðskipti við heim sósíalismans fara vaxandi og
friðsamleg þróun til sósíalisma fara fram á Islandi.
Sú barátta, sem fyrrverandi nýlenduþjóðir heyja nú gegn efna-
hagsvaldi erlendra auðhringa yfir atvinnulífi þeirra og þeirri póli-
tísku íhlutun, er fylgir í kjölfarið, ætti að verða oss lærdómsrík.
Flokksstjórnin .vill því alveg sérstaklega brýna fyrir þjóðinni að
varðveita það ástand, sem var m. a. ávöxtur þjóðfrelsisbaráttu
vorrar: að útlent auðvald átti ekki ítök í íslenzku atvinnulífi,
og Ieiða þá þjóðfrelsisbarátm til fulls sigurs með því að afnema
á Islandi allt arðrán erlends auðvalds.
Flokksstjórnin álítur nauðsynlegt, að allri þjóðinni sé skýrt sem
gleggst frá því, hvílíkar stórbreytingar eru að gerast í heiminum,
og það því fremur sem afturhaldið reynir nú að formyrkva huga
hennar með ofboðslegum áróðri og byrgja fyrir útsýnið, svo að
hún sjái ekki né skynji þau straumhvörf, sem eru að verða. En
þjóð vor þarfnast einmitt skilnings á þeim til að sjá, hvílíka mögu-
leika hún hefur sjálf til lausnar á eigin vandamálum.
Þverrandi máttur auðvaldsins í heiminum gerir Islendingum enn
hægra fyrir en áður að losna við herstöðvar þess og hrinda endan-
lega arðráni þess, og vaxandi máttur sósíalisma og bræðralags
þjóðanna auðveldar oss að stíga þau skref, sem nauðsynleg eru til
batnandi lífskjara.
n.
Þróunin í efnahags- og stjórnmálum innanlands staðfestir við'
varanir 12. flokksþingsins s.l. vetur.
Harðvítugustu og skammsýnustu fulltrúar auðmannastéttar-
innar eru að koma hér á kreppu að undirlagi erlends valds. Til-
gangurinn með þessari heimatilbúnu kreppu er að koma á ómeng-
uðu og hömlulausu auðvaldsskipulagi á Islandi. Með samdrætti
og vaxtaokri á að ræna verkalýð, millistéttir og bændur eignum
sínum og kollvarpa smærri atvinnurekendum í sjávarútvegi, verzl-
un og iðnaði, en auka völd auðmanna og lánastofnana. Afleiðing