Réttur - 01.01.1961, Qupperneq 142
142
R É T T U R
hafa í baráttunni fyrir friði
og þjóðfrelsi, varðveizlu og
víkkun lýðræðis, bættri lífs-
afkomu og þjóðfélagsréttar-
bótum til handa hinum vinn-
andi fjölda.
I baráttu hins mikla fjölda
alþýðunnar í auðvaldslöndun-
um fyrir framkvæmd þeirra
verkefna, er hún hefur til úr-
lausnar, hlýtur bandalag
verkalýðs og vinnandi bænda-
stéttar að hafa á hendi aðal-
hlutverkið, en það bandalag
er meginkraftur þjóðfélags-
byltingarinnar.
Klofning verkalýðsins, sem
ráðandi stéttir, hægrisinnaðir
sósíaldemókrataforingjar og
afturhaldssamir verklýðsfélaga-
leiðtogar vilja framlengja, bæði
í einstökum löndum og í alþjóð-
legum mæli, er aðalfarartálm-
inn á leið verklýðsstéttarinn-
ar að lokatakmarkjnu. Komm-
únistar vinna ötullega að því
að aflétta þessari klofningu.
Til þess að sundra verk-
lýðseiningunni og grafa und-
an henni grunninn reyna
heimsvaldasinnar og aftur-
haldsseggir víða um lönd að
beita blekkjngum og mútum
auk beinna kúgunaraðgerða.
Atburðir síðustu ára sanna það
enn Ijóslega, að þessi klofning
veikir stöðu verklýðsstéttar-
innar og þjónar einungis hags-
munum hins heimsvaldasinn-
aða afturhalds.
Sumir hægriforingjar sósíal-
demókrata hafa gengið opin-
berlega i lið með heimsvalda-
sinnum. Þeir halda uppi vörn-
um fyrir auðvaldsskipulagið
og ástunda að kljúfa verk-
lýðsstéttina. Af fjandskap við
kommúnismann og ótta vjð
vaxandi áhrif sósíalismans í
heimsmálum ganga þeir íhalds-
og afturhaldsöflum á hönd. í
sumum löndum hefur þessum
hægriforingjum tekizt að fá
flokka sósíaldemókrata til að
taka upp stefnuskrá, þar sem
marxismanum er hafnað um-
búðalaust, svo og stéttabarátt-
unni og arfhelguðum kjörorð-
um sósíalismans. Með þessu
hafa þeir enn sýnt þjónslund
sína gagnvart burgeisastétt-
inni. í flokkum sósíaldemó-
krata vex að vísu andstaðan
við þessa stefnu hægriforingj-
anna, og á það jafnvel einnig
við um nokkurn hluta af sjálfu
starfsliði flokkanna. Einnig
fara vaxandi áhrif þejrra afla,
sem stuðla vilja að einingu
verkalýðs og annarra vinnandi
stétta í baráttunni fyrir friði,
lýðræði og félagslegum fram-
förum. Langsamlega mestur
hluti félaga í flokkum sósíal-
demókrata, einkanlega verka-
manna, vill frið og þjóðfélags-
framfarir.
Kommúnistar munu halda
áfram gagnrýni á hugmynda-
fræði sósíaldemókrata og
hægrisinnaðri hentistefnu. Þeir
munu halda áfram viðleitni
sinni að vjnna fjölda þann, er
sósíaldemókrötum fylgir að
málum, til fylgis við stefnu
skilyrðislausrar stéttabaráttu