Réttur - 01.01.1961, Blaðsíða 149
SÉTTDE
149
Júgóslavíu upp á móti alþjóða-
hreyfingu kommúnismans, slit-
ið land sitt úr tengslum við
sósíölsku ríkjafylkinguna, gert
það fjárhagslega háð svokall-
aðri hjálp af hálfu Bandaríkj-
anna og annarra heimsvalda-
ríkja og leitt þar með yfir júgó-
slavnesku þjóðina hættu á því,
að henni glatist aftur ávextir
byltingarinnar, sem hún ávann
sér í hetjulegri baráttu sinni.
Júgóslavneskjr endurskoðunar-
sinnar ástunda skemmdar-
starfsemi gagnvart sósíölsku
ríkjafylkingunni og heims-
hreyfingu kommúnismans.
Undir yfirskini stjórnmála-
stefnu, er sé óháð öllum ríkja-
blökkum, haga þeir gerðum
sínum þannig, að mjög hlýtur
að spilla fyrjr einingu allra
friðarafla og friðarsinnaðra
landa. Það heldur því áfram
að vera áríðandi verkefni
hinna marx-lenínsku stjórn-
málaflokka að fletta ofan af
endurskoðunarsinnum Júgó-
slavíu og slá ekki slöku við
í baráttunni til að varna því,
að andlenínskar hugmyndir
þeirra vjnni áhrif meðal komm-
únista og í verklýðshreyfing-
unni.
Baráttureynsla verklýðsstétt-
arinnar og raunar allur gangur
þjóðfélagsþróunarinnar hefur
sannað enn að nýju og með
glæsilegum hætti, hvílíkur al-
sigrandi kraftur og lífsþróttur
býr í kenningum Marx og
Leníns, og hrakið jafnframt lið
fyrir lið allar „fræðikenningar"
vorra tíma endurskoðunarsinna.
■ Sleitulaust sé barizt gegn endurskoðunar-
stefnu og kreddustefnu
Framhaldsþróun hinnar
kommúnísku hreyfingar og
verklýðshreyfingarinnar krefst
þess, eins og fram var tekið í
yfirlýsingu Moskvufundarins
1957, að haldið sé áfram sleitu-
lausri baráttu á tvennum víg-
stöðvum, — annars vegar móti
endurskoðunarstefnunni, sem
er meginhættan, en hins vegar
gegn kreddustefnu og sér-
hyggju.
Endurskoðunarstefnan, henti-
stefna hægrimennskunnar, sem
endurspeglar borgaralega hug-
myndafræði í keriningu og
framkvæmd, afbakar stefnu
marxisma og lenínisma og
deyðir byltingaranda hennar,
lamar þar með byltingarvilja
verklýðsstéttarinnar, sviptir
verkamenn og hinn mikla
fjölda vinnandi fólks vopnum
sínum og verjum í baráttunni
móti kúgun heimsvaldasinna
og arðræningja, baráttunni fyr-
ir friði, lýðræði, þjóðfrelsi og
úrslitasigri sósíalismans.
Kreddustefna og sérhyggja i
kenningu og framkvæmd getur
einnig orðið meginhætta á einu
eður öðru þróunarstigi tiltek-
inna flokka nema afdráttar-
laust sé móti henni barizt. Hún