Réttur - 01.01.1961, Blaðsíða 48
48
R É T T U B
■ GJALDEYRISSTAÐAN
Ein helzta röksemdin fyrir nauðsyn „viðreisnarinnar" og þeirrar
miklu lífskjaraskerðingar, sem hún olli almenningi, var sú að við
hefðum lengi „lifað um efni fram", skuldabyrðar okkar við útlönd
væru að verða óbærilegar og óhugsandi væri að rétta við í þeim
efnum nema að takmarka stórlega kaupgetu almennings. Stjórn
vitsmunanna á innflutningi og eyðslu gjaldeyris gæti aldrei orðið
nægilega strangur skömmtunarstjóri og getuleysið yrði að leysa
það af hólmi. Hafnað var algerlega þeirri jákvæðu leið að jafna
metin með aukinni framleiðslu.
Samanburður á gjaldeyrisafkomunni á árinu 1960 og á árunum
1958 og 1959 gefur greinilega mynd af því hvert „viðreisnin"
leiðir í þeim mikilvæga þætti þjóðarbúskaparins sem viðskiptin
við útlönd eru.
Árið 1958 varð skráður gjaldeyrishalli 90,8 millj. kr. en það ár
nam birgðaaukning á útflutningsvörum 70,6 millj. kr. Þegar tillit
er til þess tekið, sem gera verður ef rétt mynd á að fást, varð
greiðsluhallinn því ekki nema 20,2 millj. kr. og varð það bezta
útkoma um fjölda ára. Árið 1959 varð greiðsluhalli 221,1 millj.
kr. en aukning útflutningsbirgða hélt áfram og varð 83,9 millj.
Það ár var raunverulegur greiðsluhalli þeim mun minni eða
137,2 millj. kr. Á þessum tveim árum varð einnig mjög stórfelld
birgðaaukning í landinu á innfluttum vörum þannig að fullyrða
má að raunverulega hafi staða okkar í utanríkisviðskiptum alls
ekki versnað á þessum árum. Aukin framleiðsla, sem grundvöllur
var lagður að á tímum vinstri stjórnarinnar, var komin að því að
leysa þann vanda, sem við var að fást að ná fullum jöfnuði í
utanríkisviðskiptunum.
Á árinu 1960 hafa straumhvörf orðið í þessum efnum. Með
skertri kaupgetu almennings tókst að vísu að þrýsta innflutningi
á almennum vörum niður um 300 millj. kr. frá því á árinu 1959
(miðað við nýja gengið) en útflutningur framleiðsluvara fram-
leiddra á árinu minnkaði stórlega og önnur gjöld til útlanda en
almenn vörukaup fóru vaxandi. Niðurstaðan er sú að skráður
gjaldeyrishalli reyndist 460 millj. kr. en samtímis gerist það að