Réttur - 01.01.1961, Blaðsíða 9
R É T T D R
9
Nei — það er annað sem að er.
Hinu gífurlega fé, sem þjóðin leggur til hliðar, er ekki
varið rétt, af því það er ekki heildarstjóm á f járfesting-
unni í þágu þjóðarinnar. Og einmitt á móti því að svo
verði berst auðvaldið á Islandi, stóra og litla íhaldið, með
hnúum og hnefum.
Öll gífuryrði þessara herra, allt sérfræðingasnakk þeirra,
er aðeins yfirvarp til þess að reyna að skapa innlendu og
erlendu auðvaldi aðstöðu til að féfletta íslenzkan almenn-
ing.---------
Það er ekki nóg með að öll efnahagsmálastefna ríkis-
stjórnarinnar hafi sýnt sig að vera tóm vitleysa. Við
því var alltaf að búast. Hún hafði tekið illa erlenda auð-
valdsstefnu ómelta og hleypt henni inn á íslenzkt efna-
hagslíf, rétt eins og þegar Karakúlhrútunum forðum daga
var hleyp á íslenzkan fjárbústofn, enda er þessi Karkúl-
pest ríkisstjórnarinnar þegar farin að eyða íslenzku efna-
hagslífi.
Það sem er PÓLITÍSK dauðasök þessarar ríkisstjómar,
er að hún hefur gert sig seka um það, sem er fyrirlitlegast
í fari hvers manns: undirlægjuhátt gagnvart þedm voldugu
og ríku, kúgun gagnvart þeim fátæku og smáu.
Táknrænt fyrir þessa afstöðu ríkisstjórnarinnar er fram-
koma hennar annarsvegar gagnvart brezka auðvaldinu,
hinsvegar gagnvart íslenzkum verkalýð.
Brezka auðvaldið hefur alltaf arðsogið íslenzka þjóð
með öllum ráðum. Það hefur beitt oss Islendinga kúgun og
ofbeldi er náði hámarki í hervaldsbeitingu þess nú í tvö
ár í landhelgisdeilunni. Níðingsskapur brezka stórveldisins
gagnvart Islendingum vakti fyrirlitningu á brezku hervaldi
og samúð með íslandi um allan heim.
Og hvað segir svo ríkisstjórnin með landhelgissamningn-
um við þennan brezka innbrotþjóf, þennan ofbeldissegg ?
Hún segir: Bróðir minn í Nato, þú þurft ekki að beita mig
ofbeldi, ég skal opna fyrir þér landhelgina, ég skal aldrei
færa út aftur nema spyrja þig um leyfi, — það eru bara