Réttur - 01.01.1961, Blaðsíða 65
R É T T D R
65
bili. Orkuframleiðsla ríkisins alls mun rúmlega tvöfaldast, en
orkuframleiðsla Miðasíu einnar mun nærri þrefaldast.
Nú þegar framleiða Miðasíulýðveldin hér um bil 800 kíló-
vattstundir raforku á íbúa hvern á ári, en það er allmiklu mleira
en í nokkru af lýðveldum rómönsku Ameríku til dæmis að taka.
Sovézku ráðstjórnarlýðveldin í Miðasíu ásamt Kasakstan fram-
leiða hlutfallslega miklu meira af raforku en grannríki þeirri
svo sem Tyrkland, þar sem framleiðslan nemur 95 kílóvattstund-
um á íbúa, íran, sem framleiðir 36 kílóvattstundir í ábúa, og
Pakistan, sem framleiðir aðeins 11 kílóvattstundir á íbúa.
Efnahags-, og menningarframfarir annarra tiltölulega smárra
þjóða Ráðstjórnarríkjanna, sem mynda með sér sjálfstjórnarlýð-
veldi, hafa einnig verið geysistórstígar. Á tímabilinu 1913—1959
hefur, til dæmis að taka, stóriðnaðarframleiðslan í Jakútska
sjálfstjórnarlýðveldinu 53 faldazt, í sjálfstjórnarlýðveldinu Kómi
109-faldazt, í Tataríska sjálfstjórnarlýðveldinu 147-faldazt og
í Baskiríska sjálfstjórnarlýðveldinu 163-faldazt.
í samfélagi jafnréttbærra sósíalískra lýðvelda hafa hin fyrri
útjaðralönd rússneska keisaraveldisins, þar sem íbúarnir voru
að þrotum komnir af næringarskorti og sjúkdómum, breytzt
í velmegandi lönd, þar sem lífsafkomustig hefur farið hækkandi
eins og raunar um öll Ráðstjórnarríkin. Tekjur verksmiðju- og
skrifstofufólks eru þar svipaðar sem í öðrum lýðveldum Ráð-
stjórnarríkjanna, og íbúar þessara svæða hljóta sömu ellilaun,
sjúkrabætur og aðrar tryggingar sem ibúar annarra landshluta.
Ennþá athyglisverðari eru þó jafnvel menningarframfarir
þjóðernislýðveldanna innan Ráðstjórnarríkjanna. Það er til dæm-
is alkunna, að fyrir byltinguna voru nærri því allir íbúar Kasak-
stans og Miðasíulýðveldanna ólæsir og óskrifandi. í þessum
löndum voru að heita má engir með framhaldsskólamenntun
eða æðri menntun. Ráðstjórnarskipulagið hefur opnað öllum
þessum þjóðum víðtæk skilyrði menntunar og menningar. Eins
og í öllum öðrum lýðveldum Ráðstjórnarríkjanna er ólæsi nú
með öllu horfið meðal íbúanna í Kasakstan og Miðasíulýðveld-
unum, og þar eins og í öðrum ráðstjórnarlöndum má segja, að 100%
íbúanna kunni nú að lesa og skrifa.
Fyrir byltinguna voru ekki til neinar æðri menntastofnanir
í Kasakstan, Úsbekistan, Kirgisíu, Tadsjikistan og Túrkmeníu.
í Kirgisíu, Tadsjikistan og Túrkmeníu voru ekki einu sinni til
neinir sérhæfðir framhaldsskólar. Hins vegar var það svo á
síðastliðnu skólaári, að tala stúdenta við æðri skóla í þessum
lýðveldum nam 211 þúsundum, en 176 þúsund nemenda sóttu
tækniskóla og aðra sérhæfða framhaldsskóla. I lýðveldum þess-