Réttur - 01.01.1961, Blaðsíða 108
108
R É T T U R
Á fundi þessum hafa full-
trúar kommúnista- og verka-
mannaflokka rætt aðkallandi
viðfangsefni, er varðar stöðu
alþjóðamála og baráttuna fyr-
ir friði, þjóðfrelsi, lýðræði og
sósíalisma.
Fundarmenn reyndust ein-
huga um málefni þau, er rædd
voru. Kommúnista- og verka-
mannaflokkarnir lýstu einum
rómi yfir hollustu sinni við
yfirlýsingu og friðarávarp árs-
ins 1957. Með þessum stefnu-
markandi samþykktum, sem
eru ávöxtur af frjórri hagnýt-
ingu á kenningum marxisma
og lenínisma, var kveðið á um
grundvallarafstöðu hinnar
kommúnisku alþjóðahreyfingar,
að því er varðar meginvanda-
mál vorra tíma, jafnframt því
að þær stuðluðu mjög að því
að samhæfa viðleitni kommún-
ista- og verkamannaflokka í
baráttunni fyrir sameiginlegu
markmiði þeirra. Þær eru
hinni kommúnísku alþjóða-
hreyfingu baráttutákn og leið-
arvísir í starfi.
Atburðarás undanfarinna
þriggja ára hefur sannað skil-
greiningu þá á stöðu alþjóða-
mála og horfum í heimsþróun-
inni, sem fram kemur í yfir-
lýsingunni og friðarávarpinu,
svo og afarmikinn vísindalegan
kraft og áhrifamagn hinna sí-
frjóu kenninga Marx og Len-
íns.
Aðalþróunarárangur þess-
ara ára er hröð aukning valds
og alþjóðlegra áhrifa hins sósí-
alska heimskerfis, skyndihrun
nýlenduvaldskerfisins fyrir á-
itökum þjóðfrelsishreyfingar-
innar, harðnandi stéttabarátta
í auðvaldsheiminum og áfram-
hald þeirrar hnignunar og
hrörnunar, sem heimskerfi
auðvaldsins er undirorpið. Yf-
irburðir þeirra afla, er vinna
í þágu sósíalisma og friðar,
gagnvart Öflum auðvalds og
ófriðar gerast æ augljósari á
vettvangi heimsmálanna.
En í viðleitninni að bjarga
stöðu sinni reyna heimsvalda-
sinnar að spilla fyrir afvopn-
unarmálinu, en jafnframt leit-
ast þeir við að treina kalda
stríðið og magna það, svo sem
mest má verða. Þeir halda ó-
trauðir áfram að undirbúa
nýja heimsstyrjöld. Af þessum
sökum er það hin mesta nauð-
syn, að sósíölsku löndin, verka-
lýður allra landa, þjóðernis-
hreyfingin gegn heimsvalda-
stefnunni, öll friðsöm þjóð-
lönd og allir liðsmenn friðar-
stefnunnar sameinist æ betur
og leggist á eitt um að af-
stýra styrjöld og tryggja
mannkyninu það að mega lifa
lífi sínu í friði. Til þess að
slíkt megi takast, verða öll
byltingaröfl að skipa sér sem
fastast saman í baráttunni
móti heimsvaldastefnunni, en
fyrir þjóðfrelsi og sósíalisma.