Réttur - 01.01.1961, Qupperneq 159
R É T T U R
159
kenninguna, ýmiskonar vanda-
mál í liffræði, kybernetik (eða
sjálf-stýrifræði) o. s. frv. Sumt
er það að vísu nokkuð torskilið
þeim, sem ekki hafa sérþekk-
ingu í þessum greinum, en bók-
in er stórfróðleg og skýrt skrif-
uð, svo að leikmenn geta haft
hennar mikil not.
ÁBM.
Evo Priester: Im Algeri-
en sprechen die Gewehre.
Der Freiheitskampf eines
Volkes. Dietz Berlag.
Berlín 1959. (í Algier
tala byssurnar. Frelsis-
barátta þjóðar).
Eva Priester er austurrískur
blaðamaður við „Volksstimme",
blað austurríska Kommúnista-
flokksins. Hún hjefur ferðast
um í Algier, þar sem hugrökk
þjóð hefur nú háð frelsisbaráttu
sína með vopn í hönd í 7 ár
gegn franska auðvaldinu og
Nato-hersveitum þess. Hún
hefur rætt við hermenn og
verkamenn, sem heyja þetta
frelsisstríð, — við konur, sem
enn bera merki pintinganna á
líkama sínum, — við stúlkur,
sem báru blæju fyrir andlitinu
í gær að múhamedskum sið, en
berjast sem skæruliðar í dag.
Hún hefur rætt við mæður,
sem sáu böm sín drepin fyrir
augunum á sér, — við börn,
sem sátu hjá líkum foreldra
sinna, — við bændur, sem
horfðu á þorp sín lögð í eyði,
af því þeir hjálpuðu frelsisvin-
um og sögðu: Ég myndi hjálpa
þeim á ný.
Hetjubarátta Algier-þjóð-
arinnar gegn böðlum Atlants-
hafsbandalagsins gneistar af
síðum þessarar bókar. Hún á
ekki hvað sízt erindi til vor
íslendinga.—Hún minnir oss á
að við, sem sjálfir vorum ný-
lenduþjóð um aldir, höfum
ekkert í böðulsbandalagi ný-
lendudrottnanna að gera.
Deutschlands unsterbli-
cher Sohn, Erinnerungen
am Ernst Thálmann.
Hinn ódauðlegi sonur
Þýzkalands. Endurminn-
ingar um Ernst Thál-
mann). Dietz Verlag.
Berlín 1961.
Ernst Thálmann, hinn frægi
foringi þýzka kommúnista-
flokksins var fæddur 16. apríl
1886, og voru því liðin 75 ár frá
fæðingu hans í vor. Var bók
þessi gefin út í því tilefni og
rita þar nokkrir tugir sam-
starfsmanna hans greinar um
líf hans og starf. Er bókin 476
síður, prýdd mörgum myndum
og hin bezta að öllum frágangi.
E. O.