Réttur - 01.01.1961, Blaðsíða 29
R É T T U R
29
hafði á að skipa, störfuðu aðeins 18,5 þúsund í samyrkjubúunum
sjálfum.
Það var því ekki að undra, að hin fræga septemberráðstefna
Kommúnistaflokksins, sem haldin var 1953, (ástandið hafði ekki
batnað síðan 1950) lét fyrst og fremst landbúnaðarmál til sín
taka. Á þeirri ráðstefnu voru teknar mjög þýðingarmiklar ákvarð-
anir um aukna fjárfestingu og breytta stjórnarhætti í landbúnaði.
Á næstu tveim árum, 1954—1955, nam fjárfesting í landbúnaði
34,4 milljörðum rúblna, eða 38% meira en á allri fimmáraáætl-
uninni næst á undan. Afurðaverð til búanna var hækkað, skattar
lækkaðir og ýmislegt annað gert til að örva framtak bænda.
120 þúsund sérfræðingar voru flæmdir út úr skrifstofum sínum
í borgum og út í sveitir. Flokkurinn sendi 20 þúsund manna lið
til að drífa upp hin lakari búin. Nokkru síðar voru vélastöðvar
ríkisins, sem höfðu reynzt bændum mjög dýrkeyptar, leystar upp
og vélarnar seldar búunum. Á tímabilinu 1954—58 voru 36 millj-
ónir hektara brotnar undir plóginn í nýræktarhéruðunum, og
þar með tryggt, að kornskortur yrði ekki í landinu jafnvel þótt
aðalforðabúr þess, Úkraína, brygðist sakir þurrka.
Jafnframt voru á tímabilinu 1954—58 (einkum þó eftir tutt-
ugasta flokksþingið 1956) gerðar margar ráðstafanir til þess að
„desentralísera" stjórn atvinnulífsins yfirleitt, auka sjálfstæði
einstakra héraða og lýðvelda í efnahagsmálum, ýta undir fram-
tak manna á hverjum stað, stjórnarhættir einnig bættir í lýð-
ræðisátt.
Breytingar þessar og framkvæmdir báru góðan ávöxt.
Árið 1958 nam kornuppskeran 8,6 milljörðum púda, eða 69%
meira en árið 1953. Á sama tímabili fjölgaði kúm úr 25,3 millj-
um upp í 33,3 milljónir, svínum úr 33,3 millj. upp í 48,7 millj.,
sauðfé úr 99,8 millj. upp í 130 millj. Á sama tíma óx iðnaðar-
framleiðslan 1,7 sinnum. Árlegur vöxtur í ýmsum greinm varð
sem hér segir:
Sovétríkin Bandaríkin
Stál .................... 3,26 millj. tonn 0,3 millj. tonn
Kol...................... 30,6 — — 6,2 — —
Sement .................. 3,2 — — 1,2 — —
Á tímabilinu 1940—1958 höfðu raunverulegar tekjur meðal-
sovétborgara tæplega tvöfaldazt, — þrátt fyrir styrjöldina, sem
átti að dómi þýzkra að stela 25 árum frá Sovétríkjunum.