Réttur - 01.01.1961, Blaðsíða 11
R É T T U B
11
helzt ofbeldi. Hún kyssir á brezka hramminn, en slær á
friðarhönd íslenzks verkalýðs. Hún einskisvirðir rétt hins
vinnandi manns, en hún mun kannski beygja sig, þegar
hinar vinnandi stéttir sýna henni hvert VAtX) ÞÆR ERU,
og sýna það VALD 1 VERKI, — I VOLDUGIJ, SAMTAKA
VERKI.
En þetta framferði, — gagnvart auðstétt Bretlands ann-
arsvegar og vinnandi stéttum Islands hinsvegar, — er
ekki það eina, sem ríkisstjórnin .hefur unnið sér til dóms-
áfellis.
Þessi ríkisstjórn hefur lagst með öllum þunga yfirstétt-
arvaldsins á þá félagslegu umbótabaráttu, á þá efnahags-
legu nýsköpunarbaráttu, sem verið hefur undirrót allra
framfara á Islandi á þessari öld:
Hún hefur stöðvað íbúðabyggingar almennings, — þetta
stórkostlega átak alþýðunnar við að húsa landið sitt, —
þetta þrotlausa starf, sem unnið var myrkranna á milli við
að skapa ágæt hús á alþjóðamælikvarða í stað gömlu hreys-
anna. — Og nú er ríkisstjórnin að 'hjálpa okrurunum til
að klófesta þær íbúðir, er þegar voru byggðar, af þeim,
sem bágust eiga kjörin.
Ríkisstjórnin hefur stöðvað sjálfbjargarsókn fólksins
um land allt, sem var að endurskapa atvinnulífið fátækum
byggðarlögum til framdráttar. Hún hefur hafið aftur eyð-
ingu landsbyggðarinnar eins og á atvinnuleysisárunum
fyrir einum áratug síðan.
Með drápsklyf jum okurvaxtanna, lánaf jötrum bankanna
og dýrtíðarfargi gengislækkunarinnar er hún að sliga ný-
sköpunarþrótt þjóðarinnar. Með ískaldri peningadýrkun
er hún að drepa þannig áhugaeld, sem lyft hefur þjóðinni
upp úr örbirgð aldamótanna til bjargálna nútímans.
Ríkisstjórnin einbeitir öllum kröftum sínum að því að
koma hér á því alræði peningavaldsins, sem gerir fátækt-
ina aftur að fylgikonu hvers alþýðuheimilis. Meðan þessi
ríkisstjórnarsamsteypa lætur legáta sína básúna það út
að þjóðfélagið þoli ekki hærra kaup verkalýðsins, lætur