Réttur - 01.01.1961, Blaðsíða 91
RÉTTDR
91
Stjórn Lúmúmba og Kasavúbú hafði óskað eftir hernaðaraðstoð
Sameinuðu þjóðanna gegn þessum aðförum Belga, og komið þeirri
beiðni á framfæri við framkvæmdastjóra SÞ, Dag Hammarskjöld,
og í ályktun Oryggisráðsins frá 14. júlí 19ó0 segir eftirfarandi:
„Oryggisráðið hefur athugað beiðni forseta og forsætisháðherra
Kongólýðveldisins til framkvæmdastjórans um hernaðarlega að-
stoð, og ákveður, að heimila framkvcemdastjóranum að gera nauð-
synlegar ráðstafanir, í samráði við ríkisstjórn Kongólýðveldisins,
til að sjá stjórninni fyrir þeirri hernaðaraðstoð, sem nauðsynleg
kann að reynast, þar til tekizt hefur með tæknilegri aðstoð SÞ
að gera þjóðarherinn hæfan, að dómi stjórnarinnar, til að taka
við hlutverki sínu að fullu."*
Fyrsta hlutverk herliðs SÞ, samkvæmt ákvörðun stjórnar Kongó
og Oryggisráðsins, var að tryggja tafarlausa brottför belgíska her-
námsliðsins frá öllum hlutum Kongó. Annað aðalhlutverkið var
að hjálpa stjórninni að varðveita einingu lýðveldisins, sem auð-
hringaleppurinn Tshombe hafði reynt að skerða. En æðsti embætt-
ismaður SÞ, Dag Hamarskjöld, fór sér hægt í að framkvæma
ályktun Oryggisráðsins. Hann gerði engar haldbærar ráðstafanir
til að koma belgíska hernum úr landi, og því síður reyndi hann
að koma herliði SÞ inn í Katanga. Hins vegar lágu Belgir ekki á
liði sínu á meðan. Mikið magn af vopnum og skotfærum var
sent til Tshombe í Katanga, bæði frá herstöðvum Belga í Kongó
og beint frá Belgíu. Belgískir hernaðarsérfræðingar þjálfuðu mála-
lið Tshombes í Katanga nótt og dag.
* Þar sem þetta er svo mikilvæg og merk ályktun þykir rétt að
birta hana einnig á ensku: The Security Council .... concidering
the request for military assistance addressed to the Secertary-
General by the President and the Prime Minister of the Repu-
blic of the Congo .... desides to authorize the Secretary-
General to take the necessary steps, in consulatation with the
Government of the Republic of the Congo, to provide the
Government with such military assistance, as may be necessary,
until, through the efforts of the Conglese Government with
the technical assistance of the UN, the national security forces
may be able, in the opinion of the Government, to meet fully
their tasks.