Réttur - 01.01.1961, Blaðsíða 64
64
R É T T U R
geysivíðum svæðum Afríku, myndi, að því er áætlað er, kosta
fimm milljarða dollara.
Þess er einnig rétt að minnast, að ríkjum þeim, er ráðið
hafa nýlendum, ber siðferðisskylda til að endurgreiða þjóðum
ríkja þeirra, er sjálfstæði öðlast, að minnsta kosti nokkurn
hluta af auðæfum þeim, sem þau hafa frá þeim tekið með
hrottalegu arðráni sínu og með því að sölsa undir sig náttúru-
auðlegð þeirra.
Koma mætti með þá röksemd, að auðvelt væri fyrir Ráð-
stjórnarríkin að krefjast afnáms nýiendustjórnarfyrirkomulags-
ins, með því að þau ættu engar nýlendur. Það er rétt, að vér
eigum engar nýlendur fremur en vér eigum auðmagn í öðrum
löndum. En sú var tíðin, að margir þjóðflokkar í landi voru
urðu að sæta grimmilegri kúgun keisarastjórnarinnar, stjórnar
gósseigenda og auðborgara. Staða landsvæðanna á útjöðrum
lceisaradæmisins var lítt frábrugðin stöðu venjulegra nýlendna,
því að þau voru miskunnarlaust undirokuð af einvaldsstjórn-
inni og auðvaldinu. Einvaldsstjórnin leit á þjóðir Miðasíu,
Transkákasíu og annarra minnihlutasvæða hins rússneska keis-
aradæmis sem lýð, er rétt væri og sjálfsagt að arðræna eftir
vild, en eftir októberbyltinguna, er þessar þjóðir höfðu öðlazt
fullt frelsi, tóku þær hröðum framförum í efnahagsmálum,
menningu og hagsæld.
Tökum til dæmis ráðstjórnariýðveldin í Miðasíu. Nú eru öll
bræðralýðveldin í Miðasíu, Kasakstan, Úsbekistan, Kirgisía,
Túrkmenía, Tadsjikistan, sem áður voru vanþróaðar nýlendur
rússneska keisaradæmisins, orðin að háþróuðum iðnvæddum
sósíalískum lýðveldum- Frá árinu 1913 til ársins 1960 sextug-
faldaðist stóriðnaðarframleiðsla þessara landa og rúmlega þó.
Svo vanþróað Iand sem Kasakstan var áður fyrr, þá framleiðir
það nú eins mikið af iðnaðarvamingi að tiltölu við íbúafjölda
og Ítalía, en orkuframleiðsla þess á mann er meiri en Ítalíu og
eins mikil og orkuframleiðsla Japans á mann.
Fyrir byltinguna nam raforkuframleiðsla á Miðasíusvæðinu
að Kasakstan meðtöldu, aðeins 7 milljónum kílóvattstunda, en
það var 300-asti hluti raforkuframleiðslu í keisaradæminu öllu.
Nú framleiðir svæðið um 19 000 milljónir kílóvattstunda á ári,
en það er 9-föld orkuframleiðsla Rússlands alls fyrir byltinguna.
Þjóðir Ráðstjórnarríkjanna eru önnum kafnar við friðsamlegt
nýsköpunarstarf, og þær framkvæma með góðum árangri sjö ára
áætlunina um efnahagsþróun Ráðstjórnarríkjanna á tímabilinu
1959—1965. Samkvæmt þessari áætlun mun iðnaðarframleiðsla
Ráðstjómarríkjanna hér um bil tvöfaldast á þessu sjö ára tíma-