Samvinnan - 01.10.1933, Síða 51
S A M Y I N N A N
273
ellitryggingu og niiðast við þá hugsun, að allir óski eftir
að tryggja sig gegn ellinni, af því að allir vonist til að
verða gamlir. Öryrkjatrygging samsvarar ekki á sama
hátt almennum hugmyndum manna, því að allir hugsa
sér, að þeir verði aldrei öryrkjar1). Hér við bætist það, að
viss ellistyrkur, sem greiddur er frá vissu aldursmarki —
helzt sem lægstu — á mjög vel við franskt skaplyndi
yfirleitt; hvern franskan mann dreymir um það, að geta
að lokum lifað á vöxtunum, þótt lágir sé. Því má að lok-
um við bæta, að ellitryggingar gefa miklu síður tilefni
til misbeitingar en öryrkjatryggingarnar, því að aldur-
inn er hægt að sanna með óyggjandi rökum, en fötlun frá
vinnu eða öryrkju verður að sanna með læknisskoðun,
sem ekki er alltaf sem öruggust. Þar getur handahóf og
vilhylli vel komizt að2).
ö. Trygging eftirlif'anda œttingja.
Einhver mesta hætta, sem vofir yfir verkamanns-
lieimili, er sú, að heimilisfaðirinn deyi fyrir aldur fram.
Það er ein algengasta orsökin til þess, að heimilið lendi í
örbirgð. En tryggingin gegn þessu er svo erfið og dýr,
að bæði sérstakar tryggingarstofnanir og ríkið sjálft
a) Samt sem áður eru álcvæði í frönsku lögunum um styrk
handa þeim, sem áður verðu fyrir því af einhverjum orsökum,
að fatlast algerlega frá vinnu. En sá styrkur er mjög lítill, og
fer eftir tillögum verkamannsins, ásamt nokkurri viðbót frá
ríkinu, en sú viðbót er aftur bundin við vissan fjölda greiddra
iðgjalda og fer aldrei vfir 100 franka, eða þrefalda upphæð
styrksins, sem manninum ber að fá af iðgjöldum sínum.
2) Hvert er í raun og veru kennimerki þess, að maður sé
•öryi'ki? þarf maðurinn að vera algerlega ófær til allrar vinnu?
Ef svo er, þá eru fæstir öryrkjar, þótt þeir sé bagaðir, jafnvel
ekki þeir, sem misst hafa báðar hendur. þýzku lögin kveða
svo á, að sá skuli teljast öryrki, sem misst hefir tvo þriðju
hluta af vinnugetu sinni. En hvernig verður það sannað, að sá,
sem áður hefir unnið fyrir þrem frönkum, geti nú ekki unnið
fyrir nema einum? það er augljóst, að í þessum efnum verður
•einnig að fara eftir skoðun læknis og umsögn.
18