Andvari - 01.03.1969, Page 25
andvari
ALEXANDER JÓHANNESSON
23
margt að bókinni að finna, bæði efnisskipan og efni, en ég fæ eklu séð
annað en hann eyði svo miklu púðri á bókina vegna þess, að bann telur bana
mikilsvirði, enda segir hann, að böfundurinn sé vel að sér í orðsifjafræði og
flestar orðskýringanna megi styðja verulegum lærðum rökum. (Tbe author
shows himself at home in the etymological lore of his subject, and most of
the etymologies given in his book have substantial learned support"). Hins
vegar kveðst hann vera höfundi ósammála við og við, geta bætt við efni hans
°g leiðrétt villur (Language Vol. 28 (1952), bls. 528). En slíkt er ekki
óalgengt { fræðum, að menn greini á um ýmis efni.
Þriðja og síðasta skeiðið í málfræðistörfum próf. Alexanders hefst sam-
hliða því, að hann vinnur að orðsifjabók sinni. Vinna bans við indóg^rm-
anskar rætur verður til þess, að hann tekur að hugleiða, hver sé í rauninni
uppruni mannlegs máls, hvernig maðurinn hafi lært að tala. En að leysa það
vandamál er þrautin þyngri.
Um kenningar sínar um uppruna málsins ritaði próf. Alexander margt
°g mikið bæði á íslenzku og ensku. Skal það nú rakið.
Hið fyrsta, sem mér er kunnugt um, að um þetta bafi birzt eftir Alex-
ander á prenti, er greinin Hvernig lærði frummaðurinn að tala? í Samtíð og
sögu II, 118—139, Rvk. 1943, en sama ár kom út Um frumtungu Indó-
germana og frumheimkynni. Fylgir Árbók Háskóla Islands 1940—41. Næst
hirtust nokkrar greinir um þetta efni í brezka tímaritinu Nature: Gesture of
Indo-Euro'pean Languages (5. febr. 1944; endurprentað í New York Times
27. febr. sama ár), Gesture Origin of Semetic Languages (7. okt. 1944);
Origin of Language (22. júní 1946); Origin of Language (4. des. 1948) og
loks Origin of Language (8. júlí 1950). Fyrsta ritið, sem próf. Alexander
hirti um þetta efni á ensku, var Origin of Language. Four Essays. Preface
hy G. R. Driver, Professor of Semetic Philology, Magdlen College, Oxford.
Eeykjavík & Oxford 1949. Næst kemur Gestural Origin of Language. Evi-
dence from Six Unrelated Languages. Preface by Cemel Enisoglu, Trabson,
Turkey. Reykjavík & Oxford 1952. Þá er Some Remarks on the Origin of
the n-Sound. Fylgir Árbók Háskóla íslands 1953. Reykjavík & Oxford 1954.
Síðast í flokki þessara rita á ensku var How did Homo Sapiens Express the
Idea of Elat? Fylgir Árbók Háskóla íslands 1957—58. Reykjavík 1958. Foks
kom yfirlitsgrein á íslenzku um þessi efni: Uppruni mannlegs máls. Reykja-
vík 1960.