Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1980, Page 95

Andvari - 01.01.1980, Page 95
ANDVARI KENNING LORDS OG PARRYS 93 kveðskaparhefð. Svo virðist sem kostir þess að nota þau, þegar kveðið er af munni frarn, hafi gefið þeim næga kjölfestu til að lifa af allar þjóðfélagsbreytingar. Erfiðara er hins vegar að kveða á um uppruna þessa kveðskaparþáttar. Lord telur, að hans sé að leita í trúarathöfnum, en síðar hafi notkun fastra orðsambanda tengzt sagnakveðskap. Fleiri skýringar hafa og verið settar fram um þetta efni. Stef. Hér að framan hefur nokkrum sinnum verið vikið að hugtakinu stefi, og skal það nú skýrt nánar. Samkvæmt skilgreiningu þeirra Lords og Parrys er stef (,,theme“) afmarkaður hópur hugmynda, sem beitt er í munnlegum sagnakveð- skap. Það hugtak, sem hér um ræðir, er harla óskylt þeim, sem bókmenntafræð- ingar nota til að flokka samtengjandi eða afstæða eðliskosti skáldverka, þ. e. þema, mótíf o. s. frv. Það sem einkum ber á milli er, að stef þeirra Lords og Parrys er áþreifanleg byggingareining kvæðisins, og það í heild sinni samröðun stefja. Hlut- verk stefsins er því að leggja til ákveðið söguefni líkt og kafli í bók. Áður var drepið á það, hvernig upprennandi kvæðamaður lærir að hlera eftir stefjum. Sum eru auðlærð og algeng eins og til að mynda ráðstefnustefið. I Bagdadljóðinu hljómar það á þessa leið: Soldáninn fær bréf frá hershöfðingjum sínum, sem setið hafa um Bagdad í tuttugu ár árangurslaust. Hann skýtur á ráð- stefnu til að þinga við oddvita sína. Einn ræður honum heilt, en annar reynist svikull. Stefinu lýkur svo með því, að hans hátign sendir bréf til Bosníu til að boða kappann Alija á sinn fund. Því fer fjarri, að sama stefið sé eins í meðförum neinna tveggja kvæðamanna, þótt kvæðið sé einnig hið sama. Þetta má sannreyna með því að skoða brot úr ráðstefnustefi Bagdadljóðsins1), þar sem fjallað er um bréf soldáns til Alija. Hér er Ijóðið flutt tvisvar af kvæðamanninum Ugljanin. Úr Bagdadljóðinu: ’) Ugljanin, júlí 1954: 1. Suka3) kallaði Suka þjón sinn 2. Soldáninn kallaði á sendiboða sinn: 3. „Farðu Suka í hesthús hans hátignar. 4. Veldu fáka og veldu gæðinga. 5. Þú skalt, sonur, fara til Bosníu. 6. Þegar sendiboðinn meðtók þessi orð, 7. fór hann í hesthús hans hátignar Ugljanin, nóvember 1934: Og hann kallaði á Suka þjón sinn þjóninn sendiboða hans hátignar: Hvar ertu Suka, sendiboði hans hátignar? Far í hesthús hans hátignar. Veldu fáka og gæðinga Suka, sem munu bera þig til Bosníu. Tak boð hans hátignar, 1) Öll kvæðaheitin eru komin frá söfnurum. Fyrir kvæðamönnunum sjáifum hafa ijóðin ekkert heiti og engan titil, heldur auðkennast af helztu atburðum, sem þau lýsa. 2) Urn frumtexta sjá Singer of Tales, bls. 76. 3) Suka er auðsjáanlega mismæii fyrir sultan (soldán).
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.