Andvari - 01.01.1985, Side 25
ANDVARI
SIGURÐUR I’ÓRARINSSON
23
í marz 1952 flutti Sigurður Þórarinsson fyrirlestur um Grímsvötn í
Brezka jöklarannsóknafélaginu í Cambridge, þar sem hann gerði grein
fyrir nýjum hugmyndum um samband Skeiðarárhlaupa og Gríms-
vatnagosa. Er þessi tímamótafyrirlestur prentaður í Journal of Glacio-
logy 1953. Kenning Nielsar Nielsen, að eldgos bræddi jökulinn og ylli
það hlaupinu, var þá almennt viðurkennd, en í fyrirlestri sínunt sýndi
Sigurður fram á að hún stæðist ekki. í ritgerð sinni frá 1940 um jökul-
stífluð lón á Islandi hafði hann lýst því hvernig leysingavatn, sem safn-
ast saman bak við jökulstíflu, fleytir loks uppjöklinum og brýzt fram
undan honum. Þessi kenning mun af mörgum vera eignuð Sigurði, en
ranglega að hans eigin sögn, því hún var almennt viðurkennd hér á
landi um þær mundir, þótt Sigurður yrði fyrstur til að lýsa henni á
prenti í fyrrnefndri ritgerð. En nú heimfærði hann þetta líkan á
Grímsvötn: Skriðjöklar renna niður í Grímsvatnalægðina en jarðhiti
bræðir þá að neðan. Þannig safnast smárn saman vatn í Grímsvötnum,
bræðsluvatn og úrkoma, unz vatnshæðin nægir til að lyfta jökulstífl-
unni suðaustan við Vötnin og Skeiðará hleypur. Niðurstöðu þessa gat
Sigurður stutt sterkum tölulegum rökum: Akomumælingar sýndu að
Grímsvatnalægðinni bættust um 0,7 km3 af vatni á ári hverju, sem svar-
aði 7 km3 rúmmáli Skeiðarárhlaupanna sem þá höfðu komið á 10 ára
fresti að jafnaði. Hann leiddi og áð því líkur, að hið óumdeilanlega
samband Skeiðarárhlaupa og Grímsvatnagosa væri afleiðing þrýstings-
léttis yfir eldstöðinni vegna hlaupsins, gagnstætt Nielsen sem hafBi talið
gosið valda hlaupinu. Þessar niðurstöður Sigurðar hafa fengið frekari
staðfestingu síðari útreikninga og mælinga, og er líkan hans af Skeið-
arárhlaupum og hegðun Grímsvatna nú almennt viðurkennt.
Sigurður Þórarinsson var einn af stofnendum Jöklarannsóknafélags
Islands 1950 og í aðalstjé)rn þess frá 1953. Þegar Jón Eyþórsson féll frá
1968 tók Trausti Einarsson prófessor, sem þá var varaformaður, við
formennskunni í eitt ár en baðst undan endurkjöri og tók Sigurður þá
við formennsku. Gegndi hann því starfi til dauðadags. Sigurður var í
ritstjórn tímaritsins Jökuls frá upphafi, og oftast meðritstjóri, og skrif-
aði jafnan mikið í það. Alls skrifaði hann um 50 greinar um jöklafræði-
leg efni, mest um jökulhlaup, jöklabreytingar, framhlaup jökla og sögu
jöklarannsókna, auk skýrslna um leiðangra á Vatnajökul og áður-
nefndrar hókar Vötnin stríð. Saga Skeiðarárhlaupa og Grímsvatnagosa,
1974.
I afmælisgrein um Sigurð sjötugan sagði Helgi Björnsson, arftaki
hans á sviði jöklarannsókna, m. a.:
„A Vatnajökli hefur hann dvalist meir en nokkur annar, ferðast þar