Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1943, Side 36
36
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
veig, ógiít i Winnipeg. 5. Guðrún Björg, gift ensk-
um manni, Victor Potter, eiga heima í Winnipeg.
Páll og Sigríður hafa alla tíð búið vel, en eru nú
búin að gefa börnum sínum i hendur lönd sín og
lausafé; hamingjan hefir gefið þeim góða heilsu
og hraust börn. Þau hafa tekið góðan þátt í öllum
þrifnaðarmálum sveitarinnar og lifa í ró og næði
á heimili sínu við Lundar.
EINAR GUÐMUNDSSON, fæddur árið 1862 á
Snotrunesi í Borgarfirði eystra; flutti til Ameríku
vorið 1893 og giftist sania árið eftirlifandi konu sinni,
Þórstímu Þorsteinsdóttur. Móðir Þórstínu var Jó-
hanna Vilhjálmsdóttir frá Mýrnesi (Mýnesi).
Einar og Þórstína fluttu í þessa bygð árið 1901,
og námu land á S.E. yA Sec. 10, T. 19, R. 5; bygðu
sér þar bústað og bjuggu þar 38 ár. Einar dó par
árið 1939, en ekkjan dvelur þar nú hjá börnum sin-
um, sem eru:
1. Jóhanna, gift Sigurjóni Jónassyni; 2. Jóhann
Sofanías, dó af afleiðingum stríðsins 1919; 3. Gunn-
steinn, stundar fiskiveiðar, ógiftur; 4. Guðný, gift
Kjartan Goodman; 5. Sveinbjörg, ógift; 6. Lilja Guð-
rún, gift Þorgils Þorgilsson; og 7. Ingi Sigurjón, býr
ógiftur með móður sinni.
Þessir fjórir áðurgreindu menn eru allir bræður,
Sveinin, Guðmundur, Páll og Einar, og þessvegna taidi
eg eigi ætterni nema eins þeirra, Sveins.
SIGURJÓN JÓNASSON Jónssonar frá Fagraskógi
í Eyjafirði er fæddur á Miðihálsstöðum í öxnadal
1871. Jónas faðir ihans dó á fslandi árið 1895, móðir
Sigurjóns var ólöf Sigurðardóttir óðalsbónda á Ási á
Þelamörk i Eyjafirði. ólöf giftist aftur árið 1896
Bjarna Guðmundssyni frá Ytra-Brekknakoti í Möðru-
vallasókn; bjuggu þar í nokkur ár, en fluttu til Ame-
ríku 1886 og settust að í Nýja íslandi.
Sigurjón flutti til Ameríku 1888, og til móður