Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1943, Síða 42
42
öLiAFUR S. THORGEIRSSON:
ur að ætterni, faðir hans, Jón að nafni, var um-
ferðasali á meðulum á austurströnd Manitobavatns,
en er dáinn fyrir 12 árum.
EIRÍKUR GUÐMUNDSSON, Eiríkssonar frá
Kjólsvik í Borgarfirði eystra, — móðir hans var
Sesselja Högnadóttir — kom til Ameríku árið 1890 og
nam land á N.E. % Sec. 34, T. 19, R. 5; bygði sér
þar heimili og nefndi “Hól.”
Högni bróðir Eiríks koin með bróður sínum
vestur; þeir keyptu land á Sec. 35, T. 19, R. 5, og
bygðu þar upp i félagi myndarlegan bæ og nefndu
hann “Laufás,” þvi góður skógur var til skjóls og
prýði, en önnur lönd þeirra mest grasengi. Höigni
giftist Guðnýju Jónsdóttur bónda Jónssonar á Ketils-
stöðum í Hjaltastaðaþinghá; þau áttu eina dóttur,
gifta Birni Björnssyni, sem nú býr í Laufási.
Eiríkur og Högni voru starfsmenn miklir.
Högni var hagur bæði á tré og járn, og hjálpaði
mörgum nýbyggjara til að byggja heimilin þeirra
upp af litlu efni, nema bjálkum, það er höggnum,
afbirktum og köntuðum grenitrjám, sem gnægð var
af í skógunum, en þakið af þéttum rafti, tróði, leir
og torfi. Þær byggingar kosta lítið, en eru hlýjar og
haldgóður og hafa dugað býsna vel Iandnemunum i
Vesturheimi, þar til þeim óx svo fiskur um hrygg, að
þeir gátu bygt af timbri eða steini.
Högni og kona hans ólu upp einn dreng fátækan.
Lárus Jónsson, og fórst mæta vel við hann; þeir
bræður voru sannir sæmdarmenn í hvívetna.
Björn Björnsson kvæntist einkadóttur Högna og
Guðnýjar, Björgjónu að nafni; þau giftust 1910 og
tóku þá við búi í Laufási og búa þar enn stóru búi,
þau eiga sjö börn. 1. Björn Högni, stundar búskap;
2. Guðmundur Eiríkur, stundar skólanám; 3. Magnús
er heima; 4. Guðrún Margrét heiina; 5. Petra Sigrún;
6. Lára Áshildur og 7. Þórvaldur Stefán, öll i barn-
æsku.