Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1943, Qupperneq 51
ALMANAK 1943
51
ár við ágætan orðstir. Hefir nú látið af þeim starfa
fyrir nokkru, og dvelur að Lundar, Man. Einnig
tók Ivristrún á móti systur sinni, Björgu, sem að
heiman kom um sama leyti og systurdóttir hennar,
og dvaldi hún á heimili Kristrúnar í mörg ár, unz
hún ílutti vestur til Argyle-bygðar og dó þar.
Sem dæmi upp á vinfestu og trygð Kristrúnar,
má geta þess, að vinskapur mikill tókst á milli Torf-
hildar Hólm og hennar er Torfhildur var hér vestra,
sem slitnaði ekki á meðan að báðar lifðu. Tók
Kristrún að sér að greiða fyrir sölu á bókum Torf-
hildar hér vestra, eftir að Torfihildur var komin heim,
og var það alltítt fyrir Kristrúnu þá, að vinna allan
daginn og ganga svo út með bækur Torfhildar til að
selja þær, fram á rauða nótt, og enginn hér mun hafa
gengið eins hraustlega að því verki sem hún. Það
var fært í sögur, að eitt kveld hafi Kristrún komið
sieint heim til sín úr einum slikum sölutúr. Hún
settist niður á stól, varp öndinni mæðilega og sagði:
“Nú er eg búin að selja fimtiu og tvær.”
Árið 1907 seldi Kristrún eign sína á Ros,s Ave.
og flutti til Grunnavatnsbygðar í Manitoba til tengda-
sonar sins Björns Lindals, viðþekts gáfu- og imerkis-
manns og konu hans en dóttur sinnar, Svövu, sem
þar bjuggu rausnarbúi. Hjá þeim átti hún síðan
heima það sem eftir var æfinnar, að undanteknum
síðustu æfiárunum, er hún dvaldi hjá Lúter dóttur-
syni sínum og konu hans Rannvieigu, og hjá þeim
Iézt hún 7. júní 1917, nálega 82 ára að aldri. Kristrún
var jarðsett i grafreit Grunnavatnsbygðar 10. júní
1917; yfir moldum hennar talaði séra Jón Jónsson,
sem þá var prestur á Lundar.
Kristrún er honfin af sjónarsviðinu, en minn-
inguna um hana geyma víst flestir þeir, sem hana
þektu.