Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1943, Qupperneq 55
ALMANAK 1943
55
fór hann ungur að vinna fyrir sér sjálfur, eins og
ungt fólk gerði í þá daga. Enda var hann bráðþroska
og vel að manni. Jón var tvíkvæntur. Fyrri kona
hans var Kristín dóttir Sigurðar pósts Bjarnasonar
frá Skrauthólum á Kjalarnesi í Kjósarsýslu. Frá því
hjónabandi átti hann þrjú börn: Sigurjón, til heimilis
i Marietta; Vilbert, dáinn, og Kristínu Adams, til
heimilis í Portland, Oregon.
Seinni kona Jóns er Björg Sveinsdóttir. Hún
er fædd 25. apríl 1871, að Gilkoti í Lýtingsstaða-
hrepp, Skagafjarðarsýslu. Björg var ein af tiu syst-
kinum. Einn af þeim var Gísli bóndi Sveinsson á
Lóni í Gimlisveit í Nýja fslandi. Um hann látinn ritar
sr. Sigurður ólafsson í Lögberg 18. nóv. 1925. Vísast
þvi þangað til frekari skýringar. Hann segir, að þau
systkin séu þremenningar við þá Dr. Vilhjálm Stef-
ánsson og Dr. J. G. Gíslason í Grand Forks-—-nú
látinn.
Foreldrar þeirra Sveinssons-systkina voru Sveinn
Ásmundsson bóndi á írafelli, og Sigríður Jónsdóttir
bónda á Kýrholti, Pálssonar hreppstjóra frá Viðvík.
Björg ólst upp á Breið í Lýtingsstaðahreppi þar til
hún var 13 ára. Vestur um haf fór hún með bróður
sínum Gisla árið 1888. Gisli fór til Nýja fslands, en
Björg til Pembina, og þaðan til Grand Forks, eftir
skanrma dvöl. Þar giftist hún Jóni árið 1902, sem
þá var ekkjumaður. Voru 'þau hjón næstu tvö ár í
Grand Forks. Fluttu árið 1904 vestur að hafi, keyptu
land í Marietta og reistu þar bú og farnaðist vel.
Enda sótti Jón sjóinn af kappi jöfnum höndum við
búskapinn, og hún ráðdeildarkona.
Þau hjón, Jón og Björg, áttu þrjú börn: Sveinsinu
Sigurrós, dáin; Violet, nú Mrs. L. Billings, til heimilis
í Portland, Oregon, og Herbert William heima.
Stjúpbörnunum, sem öll voru ung, reyndist
Björg ástrik og umhyggjusöm móðir, alveg eins og
sínum eigin, enda er hún hin ágætasta kona, glað-
lynd, yfirlætislaus og vel greind. Hún hafði og ást-