Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1943, Qupperneq 49
ALMANAK 1943
49
drengilegu hjálp og aðstoð, sem það hefir veitt ný-
komnum og allslausum löndum sínum. Hið göfuga
fordæmi, sem þessar kvenfélagskonur og aðrir full-
orðnir íslendingar í Winnipeg og víðar, hafa gefið, er
verðugt ti! fyrirmyndar, fyrir þá sem auðugri eru
af góssi og gæðurn þesisa heims. Slikt veglyndi og
systurleg umhyggja fyrir velferð Islendinganna ný-
komnu getur ekki annað en haft hin beztu áhrif á
afstöðu þeirra til hins nýja fósturlands þeirra og
mihlað skilnaðartrega þeirra til föðurlandsins, því
þó það af heiminum sé talið að vera kalt, beinabert
og ófrjótt, er það engu að síður börnum þess hjart-
lolgið.
Látum okkur vona, að sá timi komi, að fólkið
fátæka, sem notið hefir hinnar höfðinglegu gestrisni,
eigi eftir að verða, fyrir áhuga sinn og iðju, þrótt-
mikill þáttur á framfarabrautinni í þessu undur-
samlega landi tækifæranna, sér og öðrum til vegs og
sóma og auðnist aldur til að blessa hendurnar, sem
réttar voru út á móti því, þegar því lá mest á. Trúið
mér, kæri herra, eg er einlægur vin íslendinga.
W. C. B. Grahame.
Þetta bréf Grahame umboðsmanns sýnir ljóst
hve þróttmikið starf Kristrúnar og félagssystra henn-
ar var á því sviði velgerðarmálanna, sem það ræðir
um, en hve þýðingarmikið að þetta starf var, fyrir
nýkomið fólk af íslandi, allslaust, oft sárlasið, og átti
enga að, er öllum skiljanlegt, þó engum eins vel og
því sjálfu. Kristrún lá aldrei á liði sinu þar sem
hún annars lét það falt Hún var sérlega liðtæk. Á-
huginn brennandi og viljaþrekið óbilandi. En í þess-
um velgerðarmálum í sambandi við íslendingana ný-
komnu að heiman, var hún ekki ein að v,erki. Hún
hafði í verki með sér aðrar ágætar konur svo sem
þær Eyjólfsstaða-systur, Signý, Björgu, Sigurborgu,
og fleiri félagskonur þessar gengu svo langt í hugul-