Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1943, Side 63
ALMANAK 1943
63
Vancouver, B.C. og Sigríður, hjúkrunarkona, er lézt
úr “spönsku flúnni,’’ eins og segir í þætti Karls
Westman, sem er hálfbróðir þessara systkina. Guð-
brandur lét allmikið til sin taka um bæjarmál meðan
hann var í Marietta; var þar friðdómari, hvatamaður
að því að koma þar á barnaskóla, o. fl. Hann var
mikill maður vexti, Vel að sér ger um flesta hluti,
heljannenni að burðum og greindur vel. Hann lézt
í marz 1927 í Livermore, California. Sigrdður var
höfðingleg kona, og kunni vel að fara með fé það, er
hún hafði undir hendi. Var um skeið álitin efnuð.
Þetta er hálfsögð saga — hrafl tínt upp hér og þar.
Hér var um stórbrotið fólk að ræða á báðar hliðar,
sem meira hafði af gjörfuleik en gæfu. Hér myndi
söguefni þeim, er kynni að fylla vissar eyður og fara
vel með slitrótt en mikið efni.
BERGVIN JÓNSSON HOFF og kona hans Sæunn
Jónsdóttir komu frá Minneota, Minn., til Marietta um
eða eftir aldamótin. Keyptu þar landblett og reistu
sér myndarlegt heimili.
Þau hjón áttu engin börn, en ólu upp pilt og
stúlku. Pilturinn hét Kolbeinn. Hann kom Vestur
hingað með fósturforeldrum sínum og var hjá þeim
að mestu, meðart þau lifðu. Stúlkan heitir Þórdís.
Bæði gengu börnin undir nafni fósturforeldra sinna.
Kolbeinn er nú dáinn. En Þórdís er git't hérlendum
manni, og býr við Marshall, Minn. Hin mesta mynd-
arkona.
Þau hjón, Bergvin og Sæunn, voru landnemar í
Minnesota og bjuggu þar lengi. Bergvin er ættaður
úr Norður-Múlasýslu. Hann lézt í Marietta órið 1919.
Sæunn er fædd 1 Hólakoti í Eyjafjarðarsýslu.
Hjón þessi voru hið myndarlegasta fólk, gest-
risin og heimilisprúð.
(Þessi hjón voru bæði látin, þegar eg fór að
safna þáttum Marietta fslendinga; þvi er hér svo
litið um þau sagt. En eg var gestur þeirra tvivegis,