Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1943, Síða 62
62
OLAFUR S. THORGEIRSSON:
Seinni konu sinni Agnetu fvarsson (Iwersen)
(Sjá Almanak ó. S. Th., Point Roberts þátt 1925)
kvæntist hann 17. des. 1925. Þau hjón voru eitthvafi
í Bellingham, en fluttu til Marietta næsta ár; keyptu
þar land og búa þar síðan og líður vel. Þau eiga
tvö börn, Karl Brand og Ellen, bæði prýðilega vel
gefin, sem skólavitnisburðir þeirra sýna.
Bæði eru þau hjón verkmenn og búmenn. Karl
hefir sett miðstöðvarhita í hús sitt, og leiðir hitann
um tvær hæðir. En þessa er hér getið fyrir þá sök
að hann hefir bygt það alt sjálfur. Eldstæðið er gert
úr olíutunnu og pípur allar úr blikkplötum, sem hann
hefir lagað til að þjóna þörfum sinum. Samskonar
hugvit og handlægni kemur fram i öllu, sem hann
tekur sér fyrir hendur. ólíklegustu efni verða not-
hæf í höndum hans. Gott er til þeirra að koma og
skemtilegt.
Síðan þetta hér að framan var ritað, hafa þau
hjón, Karl og kona hans, sett upp verzlun i þorpinu
Marietta og starfrækja hana ásamt gasolíustöð
(bensinstöð), auk bús síns. Þau hjón eru sérlega
vel látin og gengur því sérstaklega vel.
GUÐBRANDUR SIGURÐSSON WESTMAN er
fæddur árið 1851, i Tröð í Hnappadalssýslu. Mun
hafa komið að heiinan milli 1880 og 90. Kona hans
var Sigriður Kristjánsdóttir stórbónda að Fossvöllum
i Jökuldals og Hlíðarhreppi í Norður-Múlasýslu. Hún
kom að heiman til Duluth kringum 1878. Giftist þar
norskum manni, Hanson að nafni. Skamt varð það
hjónaband. Þau Guðbrandur og Sigríður hittust í
Duluth. Fóru þaðan vestur á Strönd og giftu sig á
þeirri leið, í Spokane. Þau settust að í Marietta, lík-
lega með allra fyrsu löndum, sem þangað komu.
Börn áttu þau 4. Þau voru: tveir drengir, Walter og
Blaine, sá fyrnefndi lézt ungur, en Blaine kvæntist
hérlendri konu og hefir verið i Bellingham af og til;
og tvær dætur, Netti, gift hérlendum manni og býr i