Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1943, Qupperneq 64
64 ÖLAFUR S. THORGEIRSSON:
og sá því híbýlaprýði heimilisins og naut gestrisni og
alúðar í húsum þeirra.—-M. J. B.).
VALDIMAR ÍVARSSON (ÍWERSEN) kom með
foreldrum sinum að heiman árið 1910, og fór með
föður sinum og systkinum til Pt. Roberts 1914. —
(Sjá Pt. Roberts þátt, Alm. ó. S. Th. 1925 viðvíkjandi
fólki hans undir nafninu Gustav Jóhann ívarsson,
(Iwersen) bls. 59). Hann kvæntist árið 1930 Kristj-
önu Solback. Þau hjón voru eftir það eitt ár í Bell-
ingham, fluttu þá til Marietta og settust að á Sól-
heimum — svo nefna þau heimili sitt. Höl'ðu þeir
feðgar, Gustav og Valdimar, keypt sér þar landblett
í félagi og bygt á honum framtiðar heimili sitt, sem
þegar þetta er skrifað (1934) er enn í smíðum, en
svo langt komið, að sjá má, að þar er til vandað að
efni, formi og verki.
Iíristján kom að heiman 1922. Var eitthvað í
Blaine, fór þaðan til Bellingham og vann hjá hjón-
um þeim er Heinemann heita, dr. Heinemann. En
þar er það konan, sem á doktorstitilinn. Hún er út-
lærður læknir og hefir starfað við það og hepnast
vel. Umönnun heimilisins lenti því að mestu eða
öllu leyti á Ivristjönu, sem og barni þeirra hjóna,
pilti, sem hét Gerno.t Wolfgang. Þenna son mistu
þau. Hann var eina barn þeirra og eðlilega sárt
saknað. En oneð Kristjönu og hjónum þessum varð
einlæg vinátta, og það svo mjög, að þau keyptu lóð
eða landblett við hliðina á þeim ivarsson; reistu sér
þar heimili og búa nú þar, þó starf þeirra taki þau
daglega til Bellingham. Ekki langur vegur, 12 eða
14 mílur eftir ágætum vegi.
Þau fvarsson hjón eiga nú tvö ljómandi falleg
börn, dreng og stúlku. Drengurinn er eldri og heitir
eftir hinum látna syni Heinemanns, sem ekki var
löngu látinn, er hann fæddist. Er það geta þeirra,
sem til þekkja, að þau Heinemann hjónin hafi flutt
þangað til þess að geta verið í nágrenni við svein-