Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1921, Side 86
80 E. L.: Frá kreddutrúnni til fagnaðarerindisins. iðunn
eftir eilífum lögum, á vorn Himneska Föður, því að frá
Honum erum vér og til Hans förum vér, svo að vér
getum leitað Hans og fundið Hann, hinn eina Drott-
inn vorn og Konung, sem oss ber að tigna og tilbiðja.
Vér trúum og, að Hann hafi opinberast á hinn
fullkomnasta hátt svo sem heilagur kærleikur og rétt-
læti fyrir guðsmanninum Jesú Kristi og að Hann
með vitnisburði hans, með lífi hans og dauða í hlýðni
og kærleika, hafi bent oss á leiðina til sín, svo og á
„það, hversu oss beri að efla Guðs ríki á jörðu.
Vér trúum og, að Hann fyrir sinn Anda, sem op-
inberaðist í Jesú Kristi svo sem hinn heilagi andi
miskunnar, sannleika og nýs lífernis til fyrirgefning-
ar syndanna, trúar og helgunar i Guði, andann, sem
starfar í kirkju Hans og í öllum, sem leita sannleikans,
muni frelsa oss alla, gegnum kvöl og aga, og leiði
oss inn til sáluhjálplegs, fullkomins eilífs lífs, svo
að Hann megi að lokum verða alt í öllu. Amen.