Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Page 8

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Page 8
106 Helgafell. IDUNN Um Selþóri Grímsson og frændur hans, þá, er heiðnir voru, er það sagt, að þeir dóu í Þórisbjörg.1) Svipuðu máli gegnir um Krosshóla, þar sem Auður djúpúðga baðst fyrir. Um þá segir svo: »hon (þ. e. Auður djúpúðga) hafði bænahald sitt á Krosshólum; þar lét hon reisa krossa, því at hon var skírð ok vel irúuð. Þar hyfðu frændr hennar síðan átrúnað mikinn á hól- ana. Var þá gyr hyrg, er blót tóku til; trúðu þeir því, at þeir dæi í hólana*.2) Þá er sagt um Kráku-Hreiðar, sonarson 0xna-Þóris, að hann kaus að deyja í Mælifell í Skagafirði.3) Njálssaga segir svo frá afdrifum Svans Bjarnarsonar, móðurbróður Hallgerðar Iangbrókar, er týndist við Veiði- lausu í fiskiróðri, að fiskimenn, er voru að Kaldbak, þóttust sjá Svan ganga inn í fjallið Kaldbakshorn, og var honum þar vel fagnað.4) Minna má og í þessu sambandi á draum Flosa Þórðarsonar í Njálu, er honum þótti Lómagnúpur opn- ast og út úr fjallinu ganga maður, er kallaði til sín menn Fiosa, þá, er reyndust feigir.5) Helgafellsstaður á sér að sjálfsögðu langa og merki- lega sögu. Hins vegar vitum vér nær ekkert um fellið sjálft annað en það, sem nú hefir verið til tínt. Má af því sjá, að mikil helgi hefir verið á því, eins og nafn þess bendir til. Ætla má að vísu, að kristin trú hafi brátt þurkað út að mestu þann átrúnað, sem bundinn var við fellið. En þó má telja víst, að lengi eftir kristni- 1) Sbr. Landnámabók, kap. 118, bls. 49. 2) Landnámabók, kap. 147, bls. 64 — 65. 3) Sjá Landnámabók, kap. 244, bls. 105. 4) Sbr. Njálu, útg. Konráðs Gíslas., Kh. 1875, I, kap. 14, bls. 66. 5) Sbr. Njálu, kap. 133, bls. 698—701.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.