Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Blaðsíða 31
IÐUNN
Rúm og tími.
129
sól vor og stjörnuhópur sá, er hún telst til, sé í tölu
þeirra stjarna, sem hjúpaðar eru örsmáu ryki, líkt og
Sjöstirnið.
Geislar ljóss hindrast misjafnlega mikið af ryki því,
sem á leið þess verður, og hefir Shapley fært rök fyrir
því, að eigi seinki geislum þeim, er hindrast mest, um
meira en 1 mínútu á þessari 100 ljósára leið í gegnum
þenna móðuhjúp. Er því ryk þetta sannkallað smávægi,
sé það nokkuð. — Eigi þekkja menn uppruna þess.
Vera má, að það sé útstreymi smáagna, er berast und-
an þrýstingu ljóssins frá sólum stjörnuhópsins, og vera
má einnig, að það séu hinar síðustu leifar móðurþok-
unnar, sem stjörnuhópurinn kann að hafa safnast úr.
Niðurlagsorð. Má nú sjá, að rannsóknir allar og
hugleiðingar um sköpunarmagnið í víðáttu alheims-
ins leiða anda manna í ýmsan vanda. Virðist svo sem
staðreynd rísi gegn staðreynd og ályktun gegn ályktun.
Vafasamt er hvort mannkynið fær nokkru sinni fulla
vissu um þessa hluti, en komi hún, þá verður hennar
langt að bíða.
Ásgeiv Magnússon.