Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Blaðsíða 62
160
Frádráttur.
IÐUNN
selors), hefir gefisf svo vel, að í Los Angelos hefir
þeim fjölgað úr þremur árið 1921—22 og eru nú 38.
Arið 1924—25 fór fram ýtarleg skólarannsókn í þeirri
borg. Homu þá í ljós áhrifin af þessari nýbreytni. Skól-
arnir voru víðsvegar um borgina, og kom hvert atriði
rannsóknanna fram í skýrslunni, svo að þar var hvorki
um undandrátt né úrval að ræða.
Rannsókninni var hagað þannig, að mælingar fóru
fram tvisvar og liðu 7,2 mánuðir á milli. Auk vitprófs
var prófað í þremur námsgreinum: lestri, stærðfræði og
stafsetningu. Framförin, þar sem ráðunautarnir störfuðu,
reyndist að vera 1,3 mán. að meðaltali á barn á þess-
um 7,2 mánuðum fram yfir það, sem við hefði mátt
búast að öðru jöfnu.1) Að hér varð meiri árangur en
ella, virtist ekki geta stafað af öðru en því, að skóla-
ráðunautarnir höfðu umskapað skólaástandið.
Þessa auknu framför var auðvelt að reikna til pen-
inga. Skólakostnaður við hvert barn var það ár til jafn-
aðar í borginni 83,64 $. Af skólatímanum fóru til lestrar
ll,70/o, til stærðfræði ll,70/o og til stafsetningar 5,0°/o.
Skólaárið er tíu mánuðir. Er þá auðvelt að sjá til-
kostnað á mánuði á hvert barn og hvers virði hinn aukni
árangur var, og þá verður dæmið svona:
Viröi aukins
Aukinn árangur. Kostn. á mán. árangurs.
Lestur........ 1,1 mán. 0,98 § 1,08 $
Stafsetning . . 2,3 — 0,42 $ = 0,97 $
Stærðfræði . . 0,4 — 0,98 $ == 0,39 $
Samtals 2,44 $
Meðalfjöldi nemenda í hverjum skóla var 335. Sé það
1) Hér er aðgætandi, að við síðara prófið var miðað við hærri
kröfur.