Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Blaðsíða 10
108
Helgafell.
ÍÐUNN
Leiðið er skammt fyrir utan núverandi kirkjugarð á Helga-
felli. En enginn maður veit nú framar, hvar þeir Osvífur
Helgason, faðir Guðrúnar, og Gestur hinn spaki Odd-
leifsson, hvíla, en þeir voru báðir grafnir að Helgafelli.’)
— — — Ferðamaðurinn stendur uppi á Helgafelli.
Þögull og einbeittur hefir hann gengið upp mjóa kleif,
norðaustur af staðnum. Hann staðnæmist við vörðubrot
uppi á fellinu og horfir beint til austurs. Oskastundin
er komin. Osjálfrátt koma honum í hug allar þær sagnir,
sem hann hefir heyrt um undramátt fellsins. Nú stendur
hann vafalaust í sömu sporum og allur þorri þeirra píla-
gríma hefir staðið, sem komið hafa upp á fellið til þess
að bera þar fram óskir sínar. Aldraði bóndinn á Helga-
felli hefir sagt honum mörg dæmi þess, að menn hafi
fengið þær óskir uppfylltar, sem þeir hafa borið fram
þarna uppi. Þeir hafa fundið þar hamingju sína og sam-
tímis stuðlað að því, að varðveita hinn forna átrúnað
manna á þessum fornhelga griðastað. — Ferðamaðurinn
verður gagntekinn af lotningu. Allar hinar hversdagslegu
óskir, sem honum höfðu flogið í hug á leiðinni til fellsins,
eru gleymdar. Nú á hann aðeins eina þrá. Á banadægri
sínu mun hann gera hana heyrum kunna. Þá verða aðrir
að dæma um, til hverrar hlítar hún hefir rætzt. Þangað
til mun hún verða sameiginlegt leyndarmál hans og
fellsins.
— — — þag er fariQ ag hvessa á norðaustan. Hann
sér hvítar öldur rísa úti á Breiðafirði. Hann lítur sem
snöggvast yfir eyjaklasann í Hvammsfjarðarmynni og
Fellsströndina. í norðaustri rís Klofningur úr blámóðu
eins og geysimikill skjólgarður fyrir norðanveðrum. Fyrir
austan Álftafjörð blasir við Narfeyri, hið forna höfuðból,
1) Sbr. Laxdælasögu, kap. 66, bls. 244—45. —