Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Side 24

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Side 24
122 Rúm og tími. IÐUNN aðrar áttir, þá virtist líklega himindjúpið alveg dimt, nema hvað á stöku stað sæjust daufar enn minni slæð- ur, sem eru fjarlæg stjörnuveldi, hliðstæð því, sem um- lykur oss. Sjónaukinn mundi þó skýra betur margt, sem væri þar myrkrum hulið, því héðan frá jörðu sjást með til- styrk hans alt að því miljón stjörnuvelda eða fjarlægra Vetrarbrauta, og mundu þau vafalaust eigi síður sjást af þessum stað. En eigi værum vér þó neinu nær um mikilleika sköp- unarverksins. Vér höfum aðeins óljósa hugmynd um stærð og skipulag Vetrarbrautar þeirrar, sem vér búum í, og langt úti í rúminu vitum vér af legiónum sólna- sveipa, áþekkum henni að ýmsu leyti, en niðurskipun þeirra í alheimsvíddinni og víðáttu alla, höfum vér enga hugmynd um. Sköpunarverkið er takmarkað. Skoðanir þessar eru þess eðlis, að önnur er rjeft en önnur röng. Má því teljast undur mikið, að báðar virðast þó styðjast við rök, og skal nú lítið eitt vikið að þeim. Teljum þá fyrst, að efnið í geimnum sé takmarkalaust að vöxtum og þyngd — tala hnatta takmarkalaus og þungi þeirra allra saman óendanlega mikill. Virðist oss í fljótu bragði eigi hægt að neita því, að heimurinn geti verið svo, þó eigi geti heitið ljóst, hvað átt er við með þvílíkum orðum, því eigi nær vitund manna til óendan- leikans í einu né neinu. En stærðfræðingar, margir hverjir, neita þessu og segja eitthvað á þá leið: að eigi geti efnið í geimnum haft óendanlega þyngd, því að þá mundu liggja ótal kraft- línur gegnum einn punkt. Víðfrægir menn svo sem C. Neumann og H. Seeleger telja þetta fara í bága við

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.