Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Page 32

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Page 32
IÐUNN Þrjú þúsund, þrjú hundruð og sjötíu og níu dagar úr lífi mínu. [í vikublaði pólitískra esperantista, sem þjóðlausa alheimsfélagið (Sennacieca asocio tutmonda, skamm- stafað SAT) gefur út í París og Leipzig, koma að jafnaði greinar með fyrir- sögninni Dagur úr lífi mínu. Greinar þessar eru flestar ritaðar af verka- mönnum og lýsa alvinnu- leysi, hungri og volæði eða tilbreytingarlausu, drepandi striti á ökrum, í verksmiðj- um og námum auðvalds- forkólfanna. Við lestur þessara fá- breyttu eymdarlýsinga flaug mér í hug að skemta esper- antólesendum úti um heim Þórbergur Þórðarson. meö stuttorðri frásögn af fróðlegu tímabili úr mínu lífi. Ég valdi mér til frásagnar dagana frá 1. október 1918 til 1. janúar 1928. Fyrirsögnin að ritgerð minni varð því Þrjú þúsund, þrjú hundruð og sjötíu og níu dagar lír lifi mínu. Ritstjórinn tók grein minni fegins hendi, birti hana í blaðinu fyrir nokkrum vik- um og gaf henni þann vitnisburð, að ég væri einn af beztu stíl- istum, sem ritað hefðu esperantó. Fleiri esperantólesendur og rit- höfundar hafa vottað mér hrós sitt og þakklæti. Eg get þessa hér af þeim ástæðum, að ýmsir Iandar mínir hafa Iagt töluvert kapp á að telja mér og öðrum trú um, að sú vinna, er ég hefi fórnað í esperantóleslur þrjú síðastliðin ár, bæri aldrei neinn sýnilegan

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.