Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Side 37

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Side 37
IDUNN 3379 dagar úr lífi mínu. 135 salinn afhjúpaði alvarlega staðreynd. Og gamli leðursal- inn og uppgjafafyrirvinna mammons og þjónn drottins féllust í faðmlög eiginhagsmunanna og blessuðu burtför mína. Með öðrum orðum: A Islandi höfum vér tvo úrskurði um það, að »villutrúarmaður« eða »bolseviki« megi ekki kenna íslenzkar ritreglur. Svo barnslegur er rétttrún- aður landa minna. Ég þarf vitanlega ekki að geta þess við yður, sem þekkið hjörtu og nýru peningahræsnaranna, að eftir á stofnuðu þeir lygahringi með amerísku samábyrgðarsniði, sem kappkostuðu að breiða það út um bæinn, að ástæð- urnar fyrir brottrekstrinum væru alt aðrar en þær voru. Hvað gerði nú kennarastéttin, forsjón uppeldismál- anna, leiðtogi mentunarinnar, vörður hugsunarfrelsisins, þegar fávísir ofstækisseggir steyttu hnefann móti andlegu frelsi hennar? Hún lagði niður skottið eins og barinn hundur og þagði. A Islandi eru kennarar og andlegir fræðarar á hverju strái. En í þeirra hóp finnið þér varla neitt göfugra en tómláta eða kjarklausa matvinnunga, sem fæðast og deyja fyrir munn sinn og maga. Hér lötra allir troðnar slóðir. Hér leggur enginn nýja vegi. Hér lifa menn ekki fyrir hugsjónir. Nú skrifaði ég geysilanga og hvass-skeytta ritgerð, er ég kallaði Eldvígsluna. Hún birtist í málgagni jafn- aðarmanna og var lesin í hverju húsi á Islandi. Eftir þessi afrek hélt ég af landi burt til Svíþjóðar og dvaldist um veturinn í Stokkhólmi. Þar las ég skáld- rit, kynti mér stjórnmál, stúderaði sænskt »folklynne«, Qekk í bíó og leikhús, vandi komur mínar í baðhús og hlakkaði til endurkomu ]esú Hrists. I öndverðum maímánuði tók ég mig upp úr höfuð- borg Svía og lagði leið mína til Kaupmannahafnar. í

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.