Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Síða 40

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Síða 40
138 3379 dagar úr Iífi mínu. IÐUNN við um dagana. Og í krafti þessarar sannfæringar hóf ég esperantónám mitt þegar í stað á nýjan leik. í Kaup- mannahöfn hitti ég nokkra hjálpfúsa esperantista. Meðal þeirra reyndi ég fyrst að tala esperantó. Og þar sótti ég um aðgang að alþjóðaþingi esperantista í Edinborg. Haustið áður hafði ég gerst meðlimur í alþjóðafélaginu. í Edinborg dvaldist ég í fjórtán daga. Fundarhöldin þar tel ég eina hátíðlega atburðinn í lífi mínu. Hvílíkur hátíðleiki og hrifning! Þvílíkur eldmóður og einingar- krafíur hafði mig aldrei órað fyrir að dulist gæti í brjóstum dauðlegra manna. Þar var saman komið fólk frá 36 þjóðum úr öllum álfum veraldarinnar. Allir töluðu eina tungu. Og þar skildu allir alla. Þetta einfalda, skýra, hreimfagra mál, sem hljómaði í fundarhöllinni, skemtisölunum, matsöluhúsunum, gangstéttunum, spor- vögnunum, járnbrautarlestunum og skemtiskipunum, snart mig eins og innsýn í nýja víðáttu. Ur hinni fögru höfuðborg Skota hélt ég heim til Reykjavíkur, og þar hefi ég dvalist lengstum síðan. Hversdagsstörf mín eru að öllum jafnaði falin í því að skrifa ritgerðir um þjóðfélagsmál, trúarleg efni eða esperantó í blöð og tímarit jafnaðarmanna, að safna þjóðfræðum og orðum úr alþýðumáli, að kynna mér stjórnmál, trúarbrögð, heimspeki og skáldskap. Síðustu tvö árin hefi ég varið sérstaklega miklum tíma í lestur esperantórita. Það er ásetningur minn, eins og að framan getur, að rita alþjóðatunguna eins vel og móðurmál mitt. En það er íþrótt, sem er Islendingum erfiðari en t. d. Frökkum, Englendingum eða Þjóðverjum, sökum þess að íslenzk tunga er ærið frábrugðin þeim málum, sem einkum eru fyrirmynd að esperantó. Það er og slæmur þröskuldur í vegi esperantónáms hér á landi, að við eigum engar esperantóorðabækur. En nú vinnum við
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Iðunn : nýr flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.