Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Side 42

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Side 42
140 3379 dagar úr lífi mínu. IÐUNN vinna bug á andvökunni. Það hefir gefist mér betur en himneskar meditationir í gyltum og grænum ljósum. Oft og einatt hrekk ég upp úr fasta svefni seinna hluta nætur, upptendraður af fossandi eldmóði, sem lemur mig til að grípa penna og pappír og uppbyrja eitt vemmilegt skrífirí, rétt eins og innan í mér hamist ósýnilegur andi, guð eða djöfull, færandi mínum svefn- þrungna heila úttroðna pinkla af allskonar hugmyndum og inspiratiónum. Og í bljúgleik lítilmagnans er hönd mín neydd til að hlýða þessum miskunnarlausa harðsfjóra, sem þeytir pennanum eftir pappírnum í tvær til þrjár klukkustundir. — í Edinborg las ég fyrst um SAT. Samstundis óskaði ég upptöku í þann félagsskap og gerðist áskrifandi að Sennaciulo og Sennacieca Revuo. Ég er þjóðleysingi frá hvirfli til ilja, jafnvel alheimssinni (universano). Alls staðar þar, sem sól skín og gras grær, er heimkynni mitt. Is- lendingar eru yfirleitt alþjóðlega sinnaðir. En hér eru fáir esperantistar, og þess vegna hafa aðeins þrír íslend- ingar gengið í SAT. Á síðustu tímum hefir þó esperantó rutt sér hér töluvert til rúms. Og ég trúi, að í framtíðinni verði margir landar mínir félagsmenn í SAT, sérstaklega ef félaginu hepnast að gefa út fræðandi og skemtilega skrifuð blöð og tímarit og bækur, sem hafa bókmenta- legt gildi. Of mörg esperantóblöð og bækur eru því miður ekki eins vel rituð og vera bæri. Mér virðist jafnvel, að til- tölulega fáir esperantistar, að meistaranum Zamenhof og nokkrum öðrum snillingum fráskildum, riti esperantó verulega skemtilega. Margir af rithöfundum vorum skrifa stirðlega, þunglamalega og óskýrt. Margir fremja þá synd gegn lögum listarinnar, að hrúga saman í eitt orð of mörgum orðstofnum. Það gerir orðin löng, þunglamaleg

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.