Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Side 63

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Side 63
IÐUNN Frádráttur. 161 margfaldað með 2,44 (gildi þess, sem á vanst á barn), er upphæðin 817,40 $. Kostnaður var (áætlaður hlut- failslega): Fyrir prófblöð (mælikvarða)......... 33,50 $ Laun ráðunauta....................... 200,00 $ Skrifstofukostnaður................. 100,00 $ 333,50 $ Mismunur tilkostnaðar og ágóða er 483,90 $.!) Margt fleira var það, sem þessar ranr.sóknir og aðrar, sem síðan hafa farið fram, leiddu í ljós. Arið 1926 var einnig borin saman kunnátta barna við það, sem hún hafði verið árinu áður í skólunum, sem þá voru komnir undir umsjón ráðunautanna. Upphaflega ástandið í lestri var þannig, að börnin voru 0,38 úr deild1 2) á eftir, en ári síðar voru þau mæld á sama mælikvarða og reynd- ust þá 0,63 úr deild á undan hinu ákveðna meðallagi. í reikningi og stafsetningu varð og mikil framför. Þetta var meðalframför fjölmargra skóla. En auðvitað mældust þeir mjög misjafnlega. Þeir, sem bezt mældust í lestri, voru t. d. 16 mánuðum á undan, en þeir, sem verst mældust, voru 10,1 mánuði á eftir hinu ákveðna meðallagi. Hvernig stóð nú á þessum mikla mun á skólunum? Sú spurning virtist liggja beint við, enda var margt gert til þess að leysa úr henni. Þannig fer jafnan að afstöðnum mælingum vits og 1) Hverjum manni er heimilt að homa heim til mín og sjá skýrslurnar, sem þessar tölur eru teknar úr, svo og aðrar tölur, sem hér fara á eftir. 2) Meðalbarni eru ætluð 6 ár í barnaskóla, 10 mán. árl., er skift í tvær deildir. Prófin gera ráð fyrir vissri getu meðalbarns í hverri hinna tólf deilda.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.