Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Page 75

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1928, Page 75
IÐUNN Þýðingar úr sænsltu. 173 síðsta Ijóð um ást og yndi, eld og gáska hugar þors. Komdu til mín! — Farðu frá mér! Fagurt haustsins eldar loga. Látum stormsins leiftur þjóta, leiftra gegnum hug og blóð — uns að lygnir og ég sé þig út í skuggann ganga’ og hverfa, þig, er síðast æsku elda i mér kveiktir, þrá og Ijóð. S. F. Þjófurinn. T i, Það er ekki fagurt til frásagnar, en satt er það samt, að það fyrsta, sem Gísli lærði, fyrir utan mál og gang, var — að stela. Æfingin var því mikil og leiknin varð eftir því. Tvent bar einkum til þess, að því er menn hugðu, að hann fór svo ungur að leggja fyrir sig gripdeildir. Hann var sveitarómagi og alinn upp hjá aðsjálum hús- bændum, þar sem var altaf gnægð matar, en engum veitt nóg, og sízt sveitarómaga. Börn voru þar mörg. Þeim voru gefin ýms Ieikföng, en honum aldrei. Ætti Gísli að fá nægju sína af mat, varð hann að stela honum. Ef hann langaði til að hafa leikföng handa á milli, varð hann líka að stela þeim frá hinum börnunum.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.